Hekla frumsýnir ID.Buzz
Laugardaginn 3. desember milli kl. 12:00 og 16:00 frumsýnir Hekla ID. Buzz Pro og ID. Buzz Cargo sem eru nýjustu alrafmögnuðu viðbæturnar við ID. fjölskyldu Volkswagen. Möndlubásinn verður á staðnum til að mynda réttu stemninguna en einnig verður að sjálfsögðu hægt að reynsluaka ID. Buzz Pro fólksbílnum og ID.Buzz Cargo sendibílnum.
ID. Buzz Pro og ID. Buzz Cargo setja ný viðmið varðandi flutninga á fólki og farmi, segir í frétt frá Heklu.
Hvort sem þú ert í borginni eða úti á landi, að ferðast með fjölskyldunni eða í helgarferð með vinum, þá er ID. Buzz rafbrauðið umhverfisvænni, þægilegri og hagnýtari kostur.
Hann er með 77 kWst rafhlöðu, OTA uppfærslu (over the air), 170 kw hámarks hleðsluhraða í DC hraðhleðslu og einstaklega stuttan beygjuradíus svo eitthvað sé nefnt.
Aðrar umfjallanir
Eflaust hafa margir Íslendingar ekið um Eysturoyar-göngin í Færeyjum en þau voru tekin í notkun árið 2020 og þar er fyrsta neðansjávarhringtorg veraldar! Göngin eru 10.5 kílómetra löng og dýpsti hluti þeirra er 187 m. undir sjávarmáli.
Nico Rosberg keppti í ralli í fyrsta skipti fyrir skemmstu. Hann sýndi mögnuð svipbrigði og sagði að þetta væri heldur betur sport sem kallað gæti fram hræðslu hjá hugrökkustu mönnum. Mun óhuggulegra en Formúla 1!
Sprotafyrirtæki á sviði rafknúinna ökutækja í Bandaríkjunum, Lucid Motors, sem miðar að því að selja fyrstu lúxusgerðina sína, Lucid Air...
Flestir gera sér grein fyrir því að hemlavökvi flytur orku frá fótstigi til hjólanna og smyr hemlakerfið í leiðinni. Hann þarf að...