Smá fróðleikur um hemlavökva
Flestir gera sér grein fyrir því að hemlavökvi flytur orku frá fótstigi til hjólanna og smyr hemlakerfið í leiðinni. Hann þarf að virka við allar aðstæður; bæði í miklu frosti og miklum hita.
Nú innihalda flestir hemlavökvar glycol-ether/borate ester en með einni undantekningu. Það er DOT 5.0 hemlavökvi sem inniheldur sílikon, en hann er hannaður fyrir aðstæður þar sem er mikill raki og vatn.
Athyglisvert er að DOT 5.1 hemlavökvi inniheldur glycol-ether/borate ester sem uppistöðu ólíkt DOT 5.0 vökvanum.
Suðumark hemlavökva.
Suðumark hemlavökva er prófað þegar hann er þurr (0% vatnsmettun) og votur (3,7% vatnsmettun). Eins og sést á myndinni fyrir ofan þá skiptir miklu máli hve mettaður vökvinn er af vatni. Þegar hemlavökvi er prófaður á bílaverkstæði er notaður mælir sem mælir rafleiðni í hemlavökvanum, sem gefur til kynna hversu mengaður hann er af vatni.
Eðlissegja hemlavökva.
Þykktin á hemlavökvanum eða eðlissegjan (kinetic viscosity) er mæld við 100°C en þá er vökvinn þunnur sem vatn og -40°C en þá getur hann verið seigur eins og hunang.
ABS hemlakerfi þarf að vera með réttum vökva sem er ekki of seigur í frosti.
ABS.
Það er hægt að blanda saman sumum hemlavökvum en það er ekki ráðlegt.
Best er að verða sér úti um réttan hemlavökva í tæka tíð frekar en að hella einhverjum afgöngum í forðabúrið.
Hér er einn möguleiki til að komast að því hvernig hemlavökvi er á þínum bíl ásamt öllum hinum vökvunum.
Aðrar umfjallanir
Volkswagen mun afhjúpa hugmynd að nýjum bíl sem er náskyldur bróður sínum ID.4. Hann mun heita ID.5 GTX...
Lamborghini nýja torfærubílinn sinn – Huracan Sterrato - sérstaklega fyrir torfærur...
Nýi Smart #1 er byggður á alveg nýjum rafmagnsarkitektúr frá Geely, sem kallast SEA. Þetta mun styðja við væntanlegt nýtt úrval bíla Smart, en #1 setur einnig sniðmátið fyrir...