Kia hlýtur fern GOOD DESIGN verðlaun
Kia hlaut fjórar virtar viðurkenningar í samgönguflokki GOOD DESIGN-verðlaunanna 2022 fyrir Niro, EV9-hugmyndabílinn, EV-upplýsinga- og afþreyingarkerfið og Magenta Design-upplýsinga- og afþreyingarkerfið.
Kia EV9-hugmyndabíllinn samræmist skuldbindingu Kia um sjálfbærar samgöngulausnir.
Hönnun hugmyndabílsins sótti innblástur í náttúruna og í framleiðsluferli bílsins er m.a. notast við endurunnin efni t.d. plast sem hafa verið hreinsuð úr úthöfum og ám.
GOOD DESIGN verðlaunin hafa verið veitt í meira en sjötíu ár og eru ein langlífasta hönnunarkeppni í heimi.
Á hverju ári er valinn listi yfir bestu vöruhönnun og grafík sem hafa sett nýjar stefnur fyrir nýsköpun og ýtt undir grunninn fyrir samkeppnishæfar vörur á heimsmarkaði.
(fréttatilkynning frá Kia á Íslandi)
Aðrar umfjallanir
Nýi Ioniq 5 rafknúni krossover-bíllinn frá Hyundai lofar góðri hröðun, rúmgóðu innanrými og framúrstefnulegu stafrænu mælaborði - í einu orði sagt...
Þær eru ekki margar, konurnar á tíræðisaldri, sem rúnta um á Jagúar X-TYPE á sunnudögum. Hvað þá að þær hafi lært bifvélavirkjun í seinni heimsstyrjöldinni!
Dacia hefur heitið því að viðhalda stefnu sinni um að „elta ekki öryggisstjörnur“ eftir að nýi sjö sæta Jogger þeirra fékk aðeins eina stjörnu einkunn frá árekstrarprófunarstöðinni Euro NCAP í síðustu viku.
ISBAND umboðsaðili Jeep á Íslandi frumsýnir laugardaginn 29. maí hinn goðsagnakennda jeppa, Jeep Wrangler Rubicon 4xe í Plug-in-Hybrid útfærslu...