Líklegir líkbílar
Ég rakst fyrir skömmu á Youtube myndband frá árlegri bílasýningu Professional Car Society en þeir halda alþjóðlega bílasýningu einu sinni á ári.
Extra langir fyrir Japani
Reyndar var einn extra langur líkbíll sem kom þarna fyrir sjónir en það var Cadillac sem fluttur hafði verið út til Japan, sérpantaður með það fyrir augum að fjölskyldan gæti setið í bílnum með kistunni síðasta spölinn.
Samtök þessi eru sem sagt mönnuð aðilum sem eiga bíla sem hafa þjónað sem límósínur, sjúkra- eða líkbílar.
Japanir vilja þá extra langa.
Þetta er Triumph lík-mótorhjól.
Kaddar, sjúkrabílar
Þeir sem eru fæddir um og upp úr 1980 vita kannski ekki allir að árið 1979 er síðasta árið sem framleiddur er Cadillac sjúkrabíll svo eitthvað sé nefnt. Skemmst er að minnast greinar sem við birtum á Bílablogg hér fyrir skömmum hinn umdeilda Hjartabíl sem var í raun bara fólksbíll sem málaður var í sjúkrabílalitum og settar í hann ýmsar græjur.
Allavega datt mér í hug að lesendum gæti þótt gaman að sjá þessa bíla og lesa ef til vill brot um það sem um þá er sagt í Youtube myndbandinu sem hægt er að skoða í lok greinar.
Byggt á gömlum grunni
Það eru aðallega nokkur fyrirtæki sem standa í breytingum á bílum til líkflutninga. Bílarnir sem um ræðir eru bara venjulegir stallbakar eða skutbílar sem keyptir eru beint frá verksmiðju og þeim breytt í líkbíl – og áður í sjúkrabíla líka.
Þessi sjúkrabíll má muna sinn fífil fegri.
Þarna sjást afar sjaldgæfir bílar eins og Studebaker löggubíll, Pontiac sjúkrabílar og margar gerðir af Köddum.
Vandaðir gripir
Líkbílasmíði kanans er hin vandaðasta. Innréttingar eru flottar og ekkert til sparað. Til dæmis voru settar hurðir á Cadillac á sjötta áratugnum sem opnast á móti hvor annarri á hlið bílsins og hægt að stilla hæð bílsins hægra megin með vökvalyftu.
Hér sjáum við inn í 1957 Cadillac Superior líkbíl.
Hér erum við með sjúkrabíl, Cadillac árgerð 1957.
Þetta er Packard árgerð 1953, sjúkrabíll.
Buick árgerð 1960 sjúkrabíll.
Hér sjáum við inn í einn sjúkrabílinn, þetta er Cadillac árgerð 1969.
Cadillac einnig árgerð 1969.
Glæsilegur þessi. Cadillac árgerð 1977. Hætt var að breyta þessum bílum í sjúkrabíla árið 1979.
Þessi Cadillac er árgerð 1961 og var bæði notaður sem sjúkra- og líkbíll.
Studebaker sjúkrabíll.
Cadillac Eureka árgerð 1960.
Oldsmobile 1972.
Pontiac 1952 sjúkrabíll.
Buick Roadmaster árgerð 1950 líkbíll.
Þetta er 1993 módel af Fleetwood og notaður sem blómabíll.
Nýlegir framúrstefnulegir frá Chrysler.
Byggt á ýmsum greinum og myndir fengnar að láni héðan og þaðan.
Aðrar umfjallanir
Einhver úti í hinum stóra heimi hefur tekið sig til og gert alla núverandi keppendur í Formúlu 1 að bústnum vörubílstjórum. Útkoman er vægast sagt sprenghlægileg og fer nú eins og eldur í sinu um veraldarvefinn. Það er ómögulegt að sleppa þessu þótt vitlaust sé!
Mitsubishi mun koma af krafti aftur inn á Evrópumarkað með sportjeppa byggðum á Renault Captur
Á fimmtíu árum má koma einu og öðru í verk. Til dæmis að þjappa saman góðu liði. Hér er saga „EMMSINS“ sögð án margra orða á rúmri mínútu.
Stundum er gaman að rifja upp þá bíla sem hafa verið í eigu manns yfir ævina. Fyrsti bíllinn var breskur Morris, sem reyndist ágætlega þar til að ryðið át undirvagninn og hann fór yfir móðuna miklu! En næsti bíll á eftir honum var ekki síður eftirminnilegur; Škoda 1201 árgerð 1959 – í 3ja dyra stationútgáfu.