Fiat lofar að halda áfram að búa til smábíla á rafbílaöld
Ítalska merkið ætlar að vera staðfast og halda sig nærri rótum sínum.
Engar breytingar verða á stefnu Fiat að framleiða áfram minni bíla og ætlar fyrritækið þess í stað að auka rafmagnsframboð sitt. Þó að margir framleiðendur séu að hætta við borgarbíla og hlaðbaks-bíla í þágu crossover-bíla, telur Fiat að enn séu fullt af tækifærum í stærðarflokki lítilla og minni bíla.
Hið fræga ítalska vörumerki hyggst setja á markað fimm nýjar gerðir á næstu fimm árum, með vísbendingu um að allir verði þeir bílar í A og B stærðarflokki. Til viðmiðunar vísar A-hlutinn til lítilla borgarbíla eins og 500e á meðan B-hlutinn tengist bílum í hlaðbaksgerð eins og Peugeot e-208.
Næsti rafbíll Fiat verður lítill hlaðbakur sem situr fyrir ofan 500e. Í kjölfarið kemur svo framleiðsluútgáfan af Centoventi Concept 2019.
Fiat 500e mun koma í sölu í Bandaríkjunum árið 2024. Núverandi 500e fáanlegur í Evrópu, er knúinn af annað hvort 23,8 kWh eða 42 kWh rafhlöðupakka. Sá síðarnefndi er fær um allt að 320 km á hleðslu (WLTP) og 0-60 mílur (0-96,5 km/klst) km/klst á um 8 sekúndum.
(frétt á vef INSIDEEVs)
Aðrar umfjallanir
Hryggilegt mál kom upp í Hollandi nýverið. Bifvélavirki frá Ferrari-verkstæði var að reynsluaka einum af þeim 400 Ferrari Enzo sem framleiddir hafa verið í heiminum. Hann klessti bílinn í döðlur og já, bíllinn kostar hálfan milljarð króna.
Jeppasýning Toyota í Kauptúni verður haldin á morgun, laugardaginn 18. mars. Opið verður frá kl. 12 – 16
Ítalskur hönnuður sem starfar í útjaðri bílaumhverfis Torino hefur komið með tillögur að röð glæsilegra bíla fyrir borgarumferðina...
Bíllinn á myndunum með þessari frétt sást fyrir utan reynsluaksturssvæði Volvo í Svíþjóð og þeir sem sjá um vefsvæðið INSIDEEVs...