Borgarbíll með stæl

Ítalskur hönnuður sem starfar í útjaðri bílaumhverfis Tóríno hefur komið með tillögur að röð glæsilegra bíla fyrir borgarumferðina. Hann vonast til að hefja framleiðslu á þessu ári.

image

Bílavefsíðan segist ekki heldur vita hvar á að setja Umberto Palermo. Hann rekur hönnunarfyrirtæki í Rivoli, rétt fyrir utan Tórínó og hefur komið fram með nokkrar skemmtilegar hugmyndir að bílum.

image

En hann er í raun að vinna í vörumerkjum og markaðsetningu og hvað það nú allt heitir og hefur unnið í þessu umhverfi í nokkuð langan tíma, svo að hann veit líklega hvað hann er að gera.

image

Hann fylgir líka annarri Ami hugmynd: það ætti ekki að selja þessa bíla, þá ætti aðeins að leigja.

image

Uppskriftin er fyrir smíðasett, 3,2 til 3,7 metra á lengd, 149 cm á breidd. Hæðin hefur einnig tvo valkosti - eða - 1,2 eða 1,4 metrar. Sniðug hugmynd að nota plássið utan farþegarýmisins að framan og aftan sem stóra farangursbakka að utan.

image

Ekkert er sagt um tækniforskriftirnar – þær byggjast engu að síður á gerðarviðurkenningarmörkum slíkra ökutækja. En hann telur að akstursvið á rafhlöðunum á bilinu 75 til 150 km sé nauðsynlegt.

image

Allt þetta hér byggist augljóslega á hönnun, og hér getur maður auðveldlega verið sammála því að þessi framúrstefnulega hönnun virkar bara vel!.

En hann kemur með margar „erfiðar“ hugmyndir, svo sem mælaborð úr pressuðum pappa og hleðslukerfi sem byggist á því að bílarnir fari bara í hleðsludokku til að hlaða rafhlöðurnar.

image

Samingar eru í höfn að því sem komið hefur fram. Drifrásin verður smíðuð af Pretto, fyrirtæki í Toskana sem einnig smíðar fyrir Piaggio meðal annarra. Ett1 - fyrirtæki í Tórínó, mun sjá um að beygja og pressa álið sem að nota í yfirbyggingu og Movim - fyrirtæki í hreyfanleikaiðnaðinum - mun bera ábyrgð á dreifingu og samskiptum við notendur.

Ef stóra útisýningin í Monza verður haldin í ár, henni er nú frestað til 29. október, mun frumsýningin á Urbana verða þar.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is