Tesla Model S hlýtur 5 stjörnur í öryggiseinkunn hjá Euro NCAP
Nú á dögunum, einungis örfáum vikum áður en afhendingar hefjast á Model S, hlaut Model S 5 stjörnu öryggiseinkunn hjá Euro NCAP
Euro NCAP gerði prófanir á nýjustu útgáfu af Model S, í samræmi við nýjustu og ströngustu prófunarstaðlana frá 2020-2022, þar sem geta ökutækisins til að vernda fullorðna einstaklinga, börn og gangandi vegfarendur er í forgangi ásamt mat á hegðun til að forðast árekstra og aðra öryggisaðstoð.
Frá prófunum á Tesla Model S hjá Euro NCAP
Eftir þessar prófanir hlaut Model S 5 stjörnu öryggiseinkunn og hæstu heildareinkunn af öllum ökutækjum sem voru prófuð í sama flokki.
Tesla Model S
Model S stóð sig líka einstaklega vel í ítarlegri prófunum á öllum sviðum:
- 98% einkunn í öryggisaðstoð ökutækis.
- 91% einkunn í vernd fyrir börn.
- 94% einkunn í vernd fyrir fullorðna einstaklinga.
- Hæsta einkunn sem gefin er fyrir ákomu utanaðkomandi hlutar á ökutækið.
- Hæsta einkunn sem gefin er fyrir björgun bílsins eftir slys, og útkomu eftir að slys hefur átt sér stað.
Tesla Model 3
Tesla Model 3 með 5 „grænar“ stjörnur
Einnig má geta þess að Model 3 hlaut 5-stjörnu græna NCAP einkunn í síðustu viku.
(fréttatilkynning frá TESLA)
Aðrar umfjallanir
Þetta er ekki fyrsti bíllinn sem Paul hinn pólski gerir upp. Hann hefur gert upp sjúkrabíla, rallýbíla, löggubíla, strætisvagna, trukka og ég veit ekki hvað og hvað! Meira að segja hefur hann gert ljóta skriðdreka fína.
Volkswagen hefur þróað nýja hönnun á innanrýminu fyrir ID.7 rafbílinn sinn...
Að því er fram kom á vef Automotive News Europe gæti Ford Motor smíðað fleiri en einn rafmagnsbíl sem byggist á rafbílagrunni Volkswagen Group, að því er fram kom í viðtali Stuart Rowley
Þegar fyrstu rafbílarnir komu til sögunnar spáðu margir því að tími aflmikilla og sportlegra bíla væri liðinn