Snjöll lausn á festingu aukaljósa
Nett „ljósagrind“ sem festist á bak við númerplötuna að framan
Þegar þessi árstími gengur í garð, með myrkir og stundum minna skyggni í misjöfnu veðri getur verið ágætt að vera með „aukaljós“ til að lýsa upp veginn fram undan, sérstaklega þegar verið er að aka fáfarnari vegi í sveitinni.
Skrifari hefur átt nokkra jeppa á lífsleiðinni, og nokkra þeirra með allgóðum ljóskösturum að framan, jafnvel með háum og lágum geisla.
En í dag er minna um „fjallaferðir“ og aðeins spurning um aðeins meira ljósmagn við vissar aðstæður.
Og það reyndist svo sannarlega rétt í þetta sinn.
Einn veggurinn í verslun þeirra er þakinn aukaljósum í öllum stærðum og gerðum, jafnt þokuljós, kastarar og vinnuljós. Á myndinni sést bara hluti þeirra ljósa sem eru í boði.
Stefnan hafði verið sett á lítil ljós sem myndu ekki taka mikið pláss á bílnum en veita samt nægilegt ljósmagn.
Fyrir valinu urðu nett ljós, hvort um sig með 3 LED-perum en gáfu gott ljósmagn. 5 tommu kastarar, 2 í setti á kr 15.900.
Valdir voru kastarar með gulu ljósi, 3500K, í traustlegu en nettu húsi úr áli sem gefnir eru upp fyrir 50.000 klst notkun.
Kastararnir koma í setti með öllum raflögnum sem þarf og festingum sem eru stillanlegar með sexkantlykli.
Snjöll kastaragrind
En þá kom spurningin um það hvernig best væri að festa þessi ljós á bílinn, en starfsmenn AMG Aukaraf voru með svarið á reiðum höndum.
Samið var við þá um ásetningu ljósanna og frágang, og þá yrði bætt við litlum rofa í seilingarfjarlægð frá ökumanni, svo það væri létt að kveikja og slökkva.
Ökuljósin loks með gott ljósmagn
Bíllinn var fyrir með hefðbundin ljós með halogen-perum, sem í raun og veru voru ekki að gefa mikla birtu. En þegar þetta var rætt við starfsmennina, þá sögðust þeir geta lagfært þetta líka, sett í LED-perur sem myndu gefa meira og hvítara ljósmagn.
Að aðgerðinni lokinni var farið í „prufuakstur“ á ljóslausan veg um kvöldið og þá sást áþreifanlega hversu mikil breyting var á ljósmagni aðalljósanna, meiri og breiðari birta fram á veginn.
Þegar nýju litlu LED-ljóskösturunum var bætt við var gott ljósmagn á götunni framundan.
Aukaljósin eru þannig tengd að það er hægt að kveikja á þeim með aðeins stöðuljós kveikt, sem getur verið mjög gott í snjókomu og slyddu, því sterk hvít aðalljós lýsa um of upp hvítu snjókornin og mynda hreinlega „vegg“ fyrir framan bílinn.
Það skal tekið fram að þessi grein er skrifuð fyrir Bílablogg án aðkomu AMG Aukarafs
Aðrar umfjallanir
Rivian Automotive, sprotafyrirtæki á sviði rafbíla með stuðningi Amazon og Ford Motor, á í viðræðum við bresk stjórnvöld um að byggja fyrstu...
Hvað er erfiðast við að vera bifvélavirki? Þetta er stór spurning sem einhver varpaði fram á veraldarvefnum. Svörin voru mörg og er kannski ágæt hugmynd að taka saman það helsta. Ef þú, lesandi góður, ert bifvélavirki þá er gott að vita að margt í starfinu virðist vera erfitt á heimsmælikvarða. Heimsmælikvarða bifvélavirkja.
Hugmynd Nissan að nýjum rafbíl er fljótandi „rennileg, kynþokkafull og óaðfinnanleg“ hönnun á nýjum rafmagns „crossover“ með grilllausan framenda, flatt gólf og látlaust mælaborð...