Klassískir Bugatti komnir „heim“
Bugatti færir 5 af vinsælustu klassísku módelunum sínum „heim“
Hver á sér einstaka sögu og er mikilvægur hluti af sögu fyrirtækisins
Sagt er að meðalkaupandi Bugatti-bíla á nú þegar heilmikið af bílum og á líklega einn af flottustu bílum vörumerkisins áður en hann bætir öðrum í „hesthúsið“.
Bílaframleiðandinn hitti einn þekktasta safnara Bugatti-bíla á undanförnum árum, en hann var ekki að vonast til að selja honum annan bíl.
Bugatti vildi geyma og varðveita bílana sína, sem margir hverjir leiddu fyrirtækið til mikils vaxtar og sem einn af leiðandi aðilum í mótorsporti og lúxus. Bílaframleiðandinn náði þessu fram og hefur nú flutt umtalsverðan hluta af þessari sögu sinni „heim“.
Hans Matti er ritari Bugatti Club Suisse og hefur safnað einu glæsilegasta safni heims af klassískum Bugatti bílum.
Bílskúrinn hans var með Bugatti Type 51, Type 37A, Type 49 Faux cabriolet, Type 35B, og Type 35A. Bílarnir eiga hver um sig ótrúlega sögu þar á meðal Type 51 með Grand Prix kappaksturssögu sinni og Type 49 sem var einkabíll Jean Bugatti.
Bílarnir fimm hafa nú lagt leið sína til Bugatti, þar sem þeir munu verða varðveittir í Chateau Saint Jean, sem Ettore Bugatti keypti til að skemmta viðskiptavinum. Þeir verða geymdir nákvæmlega eins og þeir eru, með upprunalegri málningu, hnoðum og öðrum hlutum.
Hér að neðan má sjá myndasyrpu af bílunum:
(grein á vef Autoblog)
Aðrar umfjallanir
Chevrolet Impala var kynntur til leiks árið 1958. Þetta var kraftmikill kaggi og reyndist GM undirstaða frekari framleiðslu..
Þó að við sjáum ekki sportbíla í ljósum logum á íslenskum vegum þá er það víst raunin úti í hinum stóra heimi. Þar kviknar í ofursporturum furðulega oft miðað við aðra bíla en hér útskýrir klókur náungi hvaða skýringar kunna að liggja að baki.
…þá er kominn tími til að gefa allt í botn og þyrla því upp aftur, ekki satt? Eða kannski þyrla upp ryki á nýjum stöðum? Margs er að vænta á komandi keppnistímabili í Formúlu 1. Fyrir utan hádramatíska tilfinningaflækju og margs konar óútreiknanleg fyrirbæri. Hér eru nokkur óflækt atriði.
Sjálfknúna „kerran“ hans Leonardo er uppfinning hönnuð af Leonardo da Vinci, og af mörgum talin vera forfaðir nútímabílsins.