Á því herrans ári 1966
Þessi Volvo Amazon árgerð 1966 er eins upprunalegur og hugsast getur. Þessi sjaldgæfi svarti litur, 19-svartur er afar fallegur og lakkið er nánast fullkomið eins og krómið og öll smáatriði. Ný gúmmi, nýtt mælaborð og felgunar voru aðeins sandblásnar og sett ný dekk á þær.
Innréttingin er upprunaleg og er í Burgundy lit. Hún er afar vel farin og hefur aðeins verið vandlega þrifin segir í sölulýsingu þessa bíls á vefnum Car and Classic en bíllinn er auglýstur til sölu þar.
Það virkar allt í bílnum, upprunalegt útvarp og meira að segja Volvo gúmmímottur með.
Mjúkur dreki
Þessi Volvo er með B18 vélinni og hún malar eins og köttur, mjög vel hirt og vel stillt af sænskum Amazon sérfræðingi. B18B var framleidd á árunum 1964 til 1966 og var um 107 hestöfl við 5800 snúninga. Sú vél var um 1800 rms.
Akstur: 140 þús. km. Upprunuleg handbók fylgir bílnum.
Fjölskyldufólksbíll og löggubíll
Volvo Amazon var hugsaður sem millistærðarbíll og framleiddur á árunum 1959 til 1970. Hann var fyrsti bíllinn sem kom með þriggja punkta öryggisbelti sem staðalbúnaði.
Upphafleg framleiddur í Lundby í Gautaborg og Torslanderverken sem hóf starfsemi 1964.
Alls voru framleiddir rétt um 235 þúsund fjögurra dyra bílar, 360 þús. tveggja dyra og 73 þúsund station bílar þegar uppi var staðið. 60% af bílunum voru seldir til útflutnings.
Amazon svipaði til bíla þess tíma. Það er talsvert líkt með Chrysler New Yorker og Chrysler 300C hardtop kúpubaksins í kringum 1950.
Hönnuður bílsins, Jan Wilsgard sagði að hann hefði fengið innlblástur við hönnun bílsins þegar hann sá eitt sinn Kaiser við höfnina í Gautaborg.
Notaður af lögreglunni
Undirritaður man glögglega eftir Volvo Amazon lögreglubílum á götum Reyjavíkuborgar. Um leið og þeir ollu manni smá beyg bar maður virðingu fyrir þessum hvítu Volvoum sem voru með stóru rauðu ljósi á toppnum og sírenu sem gat gefið óhugnanlega hátt hljóð á stundum. Ég hef verið um fimm ára er ég fékk að setjast upp í svona bíl. Sætin voru dúnmjúk og þau voru einmitt rauðleit ef ég man rétt.
Unnið upp úr Wikipedia, Classic Cars
Myndir: Classix.se
Aðrar umfjallanir
Tesla vinnur með birgjum, þar á meðal Panasonic samstarfsaðila, að stærri sívalur rafhlöðu klefi til að auka skilvirkni og draga úr kostnaði.
Alveg síðan hann var pjakkur hefur hann verið með eindæmum áhugasamur um strætisvagna og rútur. Alveg gagntekinn! Wales-búinn Christian Cook framfleytir sér með því að koma fram sem dragdrottning á kvöldin en á daginn nýtur hann þess, loksins, að aka strætisvagni, skólabíl eða rútu.
Samkvæmt fréttum á ýmsum bílavefsíðum er FCA er að fara að koma fram með þriggja sætaraða jeppa í fullri stærð með Jeep Wagoneer og Jeep Grand Wagoneer...
SHANGHAI - Kínverski rafbílaframleiðandinn Nio kynnti á laugardag sinn fyrsta fólksbíl og horfir til aukinnar hlutdeildar í stærsta bílamarkaði heims...