Jeep Wagoneer / Jeep Grand Wagoneer
Samkvæmt fréttum á ýmsum bílavefsíðum er FCA er að fara að koma fram með þriggja sætaraða jeppa í fullri stærð með Jeep Wagoneer og Jeep Grand Wagoneer. Sá fyrrnefndi, hannaður til að vera almennari, og mun halda áfram að þjóna hinum almenna markaði.
Sá síðarnefndi verður lúxus flaggskip fyrir vörumerkið Jeep, sem ætlað er að koma til móts við hina nýju Escalade og Navigator-jeppa á Bandaríkjamarkaði.
Búast við að sérstök áhersla í sölu verði óvenjuleg utanvegahæfni og drifrás með tengitvinnbúnaði. Eins og sjá má á myndinni má vænta þess að horfið verði aftur til fyrri tíma með „tréklæðningu“ líka á hliðum, eins og var algengt hér áður fyrr.
Hvenær: Seint á árinu 2021
Aðrar umfjallanir
Það er sjaldgæft að margfaldir heimsmeistarar standi frammi fyrir algjörlega óyfirstíganlegri hindrun og það frammi fyrir þúsundum áhorfenda. Þetta gerðist þó í gær þegar þeir Sébastien og Sebastian ætluðu að fagna.
Volkswagen hefur farið sér hægt varðandi „alvöru“ torfærubíla, en þó hafa öðru hvoru borist fréttir af því að þar á bæ...
Kia hefur tilkynnt áætlanir um að setja upp nýja framleiðslustað fyrir nýtt framboð af sérsmíðuðum rafbílum, sem hluti af víðtækari verksviði til...
Fyrirtækið sem verður stofnað með samruna Fiat Chrysler Automobiles (FCA) og Groupe PSA - eigenda Peugeot, Citroen, Vauxhall og DS...