Volvo mun innkalla 2 milljónir bíla til að laga öryggisbelti
- Fyrirbyggjandi aðgerð sem snertir 957 bíla hér á landi
Innköllunin hefur áhrif á fyrstu kynslóð XC60, sem var söluhæsti bíll Volvo á heimsvísu á umræddu tímabili sem aðgerðin tekur til. Volvo seldi næstum 1,07 milljónir eintaka af þessum bíl frá 2008-17.
Volvo mun innkalla 2,18 milljónir ökutækja um heim allan til að gera við stálvír sem gæti slitnað og dregið úr aðhaldsgetu framsætisbeltanna.
Þetta er stærsta innköllun í 93 ára sögu fyrirtækisins.
Meira en 400.000 ökutæki sem verða fyrir áhrifum eru í Svíþjóð, meira en 300.000 eru í Bandaríkjunum og 178.000 eru í Þýskalandi.
„Þetta er öflug lausn, til að útiloka að þetta komi upp síðar“, sagði Volvo.
Bílaframleiðandinn sagði að engar tilkynningar hafi borist um slys eða meiðsli.
Eigendur 957 bíla á Íslandi fá bréf frá Brimborg
Við höfðum samband við Egil Jóhannsson forstjóra Brimborgar, umboðsaðila Volvo á Íslandi og leituðum frétta af því hvaða áhrif þetta hefði hér á landi.
„Um er að ræða fyrirbyggjandi aðgerð, en engin tilfelli eru þekkt um að eitthvað hafi komið upp á“, segir Egill.
„Þetta fer í hefðbundið innköllunarferli hjá Brimborg skv. ferli Volvo. Bréf fer út í næstu viku á eigendur 957 bíla til að láta þá vita.
Stórfelld innköllun
Helstu svæðin þar sem Volvo-bílarnir sem þetta snertir eru staðsettir:
(byggt á frétt á Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Það bíða margir eftir nýja Grenadier-jeppanum frá Sir Jim Ratcliffe. En þetta er aðeins farið að skýrast því nú herma...
Vinningshafar eftirsóttustu bílaverðlauna Evrópu - Gullna Stýrisins - hafa verið valdir!
Flestir ökumenn í dag þekkja „hraðastilli“ í bílnum, stundum kallaður „skriðstillir“ (Cruise Control), sem er búnaður sem heldur bílnum á fyrirfram stilltum hraða, en sem hættir að virka um leið og við snertum fótstig hemlanna svo dæmi sé tekið.
Honda CR-V endurskoðaður með nýjum innréttingum og aukinni tækni - en blendingsdrifrásin er óbreytt...