Ford Mustang Mach-E crossover-rafbílnum seinkað til 2021 á sumum svæðum
Ford Mustang Mach-E rafbíllinn er með meira spennandi bílum sem átti að koma á markað á þessu ári – það gæti orðið bið á því að þetta gerist.
Samkvæmt fréttum gæti nýi rafbíllinn Mach-E verið töluvert á eftir áætlun en Ford hefur aðeins tilkynnt opinberlega um tafir á sumum mörkuðum.
Samkvæmt opinberum fréttum frá Hollandi, Frakklandi og Bretlandi - með tölvupósti Ford til pöntunarhafa - mun hinn rafknúni Mustang Mach-E crossover-bíll ekki koma til afhendingar fyrr en snemma árs 2021. Í þessum löndum hafði Ford áður lofað fyrstu afhendingu á árinu 2020. Ef bílaframleiðandinn getur staðið við afhendingar snemma árs 2021 er þetta í raun ekki slæmt miðað við kringumstæður sem tengjast heimsfaraldri COVID-19.
Halda sig enn við afhendingar á Bandaríkjamarkaði árið 2020
Enn sem komið er hafa engar opinberar fréttir borist frá Ford eða fyrirvari komið fram um að Mach-E muni seinka. Ford hefur haldið áfram að fullyrða að vírusinn hafi ekki haft áhrif á framleiðslu inna Bandaríkjanna eða afhendingu komandi rafmagns sportjeppa. Reyndar hefur Ford að sögn svarað fyrirspurnum frá ýmsum vettvangi. Þar sagði að nú séu engar bandarískar seinkanir og Mach-E muni enn koma til 2020.
(Heimildir: Insied eev - Mach-E Club, Mach-E Club (2), Mach-E Forum.com)
Aðrar umfjallanir
Bandaríkin eru þekkt fyrir stóra bíla, ekki síst eftir 1950 fram yfir 1980. Þó voru gerðar nokkrar tilraunir til að framleiða og markaðssetja minni bíla...
Nissan er að skoða það með samstarfsaðilanum Renault hvort það borgi sig að búa til arftaka sem tæki við af núverandi Nissan Micra...
GM er ekki til í keppinaut við Bronco með brunavél, en rafmagn er á borðinu...
Aðalspaugið á Twitter síðustu klukkutímana er fréttatilkynning formúluliðsins BWT Alpine um að Oscar Piastri muni aka fyrir liðið frá 2023 í stað Fernando Alonso sem fer yfir til Aston Martin. Málið er að Piastri kannast ekki við að hafa skrifað undir eitt eða neitt og er hundfúll út í Alpine.