Ford sýnir gamlar teikningar af hönnun GT40
- Keppnisbíll Ford sem sigraði Ferrari á sínum tíma þróaðist út frá þessari hönnun
Það er stundum bæði gaman og gott að róta í gömlum hirslum, því kappakstursbíladeild Ford hefur grafið upp gamlar teikningar af upprunalega GT40 keppnisbílnum, teiknaðar fyrir 57 árum. Hönnunin leiddi til bílsins sem sigraði Ferrari við Le Mans og sigraði fyrst í heildina í sólarhringskappakstrinum fjórum sinnum í röð, frá 1966 til 1969.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612441162_1572933109262571206_2584306051000.jpg)
Upprunaleg hönnun GT GT40
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612441161_5563984286477136844_2583236705000.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612441163_5754238384467813531_2585452153000.jpg)
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612441164_5677715303913263228_2586531164000.jpg)
Teikningarnar fundust af skjalavörðum sem hafa verið að skoða filmur. Þrjár þeirra sýna fyrstu hugmyndinar um ytri hönnun GT40; sú fjórða er úrklippt sem sýnir hluti af ramma og fjöðrun íhluta GT40.
Útlitsteikningarnar sýna mikil áhrif frá framúrstefnulegri hönnun bíla um 1960. Hönnunin er mjög slétt og ef grannt er skoðað svolítið ítölsk. Framendinn sýnir form sportbíla með miðjuvél á sjöunda og áttunda áratugnum.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612441165_8914538928939317411_2587661594000.jpg)
Upprunalegt leirlíkan af Ford GT40.
Þessi hliðarsvipur birtist líka í myndinni af leirlíkaninu, sem Ford deildi líka í sömu Twitter færslunni.
Að mati Autoblog sem birti teikningarnar er mest heillandi teikningin sem sýnir fjöðrun GT40 að framan og aftan, vél, rafgeymi og jafnvel varadekk. Þessi síðastnefndu tvö atriði eru sýnd í framenda GT40, langt í burtu frá drifrásinni til að ná betra jafnvægi.
Skjalaverðir Ford hafa deilt öðrum gimsteinum frá sama tímabili undanfarið, þar á meðal fyrstu teikningunum af því sem mundi verða Mustang eftir hönnuðinn Gale Halderman, sem lést í lok apríl.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1660833607_3238952093059539879_14459511695858001.jpg)
Þetta er í raun og veru ekki samanburður í þeim skilningi orðsins sem hér myndi eiga við en burtséð frá því er þetta frekar flott myndband af tveimur þokkalegum ökutækjum. Toyota Land Cruiser GR Sport og Land Rover Defender í svolitlum torfærum.
![](https://img.bilaskra.is/images/1637451607_1610909240046939412_5026207240778092.jpg)
Þegar eitthvað sérstakt stendur til í heimi viðskipta, eða þegar til dæmis „litaðir“ föstudagar nálgast þá er oft brugðið á leik, og það...
![](https://img.bilaskra.is/images/1612440090_5156018357482426870_1512345301000.jpg)
Volvo Cars hverfur frá dísilknúinni fortíð sinni og heldur inn í rafmagnaða framtíð, að því að fram kemur í frétt á Automotive News Europe í dag...
![](https://img.bilaskra.is/images/1612441507_1963280840444485484_2929166250000.jpg)
Við höfum verið að bíða þess að Ford komi með nýja Bronco og nýjan F-150 á markað en nú virðist verða seinkun á því um...