Jeep Wagoneer / Jeep Grand Wagoneer
Samkvæmt fréttum á ýmsum bílavefsíðum er FCA er að fara að koma fram með þriggja sætaraða jeppa í fullri stærð með Jeep Wagoneer og Jeep Grand Wagoneer. Sá fyrrnefndi, hannaður til að vera almennari, og mun halda áfram að þjóna hinum almenna markaði.
Sá síðarnefndi verður lúxus flaggskip fyrir vörumerkið Jeep, sem ætlað er að koma til móts við hina nýju Escalade og Navigator-jeppa á Bandaríkjamarkaði.
Búast við að sérstök áhersla í sölu verði óvenjuleg utanvegahæfni og drifrás með tengitvinnbúnaði. Eins og sjá má á myndinni má vænta þess að horfið verði aftur til fyrri tíma með „tréklæðningu“ líka á hliðum, eins og var algengt hér áður fyrr.
Hvenær: Seint á árinu 2021
Aðrar umfjallanir
Vefur Auto Express birtir frétt um að ný fullrafknúin útgáfa af hinum vinsæla Ford Puma...
Þó sannarlega megi sjá fjölda fugla í myndinni The Birds eftir Alfred Hitchcock þá eru bílarnir í myndinni kannski öllu meira spennandi í augum lesenda. Þeir eru býsna margir, þ.e .bílarnir.
Ójá! Það er sko mikill munur á kælivökva og rúðuvökva. Einkum er vont ef sá síðarnefndi fer á… Ojæja, það þarf kannski ekki að hafa mörg orð um það.
Við höfuð áður fjallað um fyrirætlanir Mitsubisi að minnka umsvif sín í Evrópu en í dag segir í frétt á vef Automotive News Europe að fyrirtækið muni draga saman...