Myndir af BMW iX3 leka út á samfélagsmiðla

Myndir sem greinilega eru teknar á vegum bílaframleiðandans hafa lekið út á samfélagsmiðla.

image

Myndirnar birtust fyrst á Instagram, á spánsku bílabloggi þar sem þær dreifðust síðan um netheima.

Reyndar höfum við ekki miklar upplýsingar um þennan nýja bíl nema þessar tvær myndir. Þær sýna glögglega að búið að er að loka BMW grillinu eins og svo oft er gert í nútímahönnun rafbíla. Einnig má sjá að felgurnar eru hannaðar til að sporna við aukinni loftmótstöðu.

image

Bláar línur á hliðum afturenda bílsins gefa til kynna að þar sé rafmagnsbíll á ferð.

Við erum svosem ekki búinn að sjá inn í bílinn en reikna má með að rafmagnsútgáfan verði með einhverjar nýjungar í mælaborði og margmiðlunarkerfi en örugglega nátengt núverandi útliti.

Ekkert hefur komið hvenær bíllinn kemur á markað og líklega verður einhver seinkun út af Covid-19.  Engu að síður er reiknað með bílnum á markað í lok 2020.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is