VW forsýnir nýja sýna á Caddy sem gæti líka orðið Ford Transit Connect

Nánast allir bílaframleiðendur hafa komið fram með litla og netta bíla, sem allir byggja á sömu hugmynd: Lítill og snaggaralegur bíll með sætum fyrir tvo og litlum en samt rúmgóðum flutningskassa þar fyrir aftan.

Til að bæta um betur hafa margir framleiðendur síðar þróað bíla sína þannig að þeir hafa bætt við aftursætum og hliðargluggum, þannig að þessi litlu sendibílar nýtast vel stórum fjölskyldum sem þurfa gott pláss. Einn slíkra bíla er Volkswagen Caddy, sem hefur átt miklum vinsældum að fagna um allan heim.

Nýr Caddy er að fæðast!

Volkswagen birti teikningar í vikunni til að forskoða næstu kynslóð Caddy, litlum sendibíl sem sögulega hefur verið náskyldur Golf. Þessi nýja gerð verður boði í bæði fólks- og farmflutningsgerð þegar hún verður frumsýnd á heimsvísu í febrúar 2020.

image

Hugmynd Volkswagen að árgerð 2020 VW Caddy?

image

Caddy situr neðst í sendibílaflokki Volkswagen, fyrir neðan Transporter - sem rekur rætur sínar að upprunalega „rúgbrauðinu“, sem var með vélina að aftan eins og gamla bjallan - og Crafter.

Teikningarnar sem fylgja þessari frétt sýna djarfa, ágenga hönnun með áherslum eins og sportlegri gerðir með rautt dráttarauga sem stendur út úr framstuðaranum, stórum loftopum og áberandi hjólbogum. Bíllinn sem fer í framleiðslu mun væntanlega ekki líta svona ágengur út, en hönnun hans, einkum á framendanum mun fá innblástur frá áttunda kynslóð Golf.

Hefur þróast

Tengingin milli gamla bílsins og þess nýja mun ná dýpra en við sjáum. Núverandi Caddy hefur þróast talsvert síðan hann var kynntur árið 2003 en hann byggist lauslega á fimmta kynslóð Golf. Búist er við að í þetta skipti muni bíllinn byggja á MQB grunni Volkswagen. Þar af leiðandi mun núi bíllinn bjóða upp á líflegri akstursupplifun og betri tækni.

Fjölbreyttari drifrás

Listinn yfir valkosti hvað varðar drifrás mun verða lengri og tekur til bensín- og dísil - fjögurra strokka véla, sjálfskiptingu með tvöfaldri kúplingu og handvirka gírkassa, svo og framhjóladrif og 4Motion fjórhjóladrif. Vegna þess að skipt hefur verið yfir í MQB grunninn mun Volkswagen einnig bjóða Caddy sem „hybrid“ í fyrsta skipti. Drifrás með bensíni og rafmagni hefur ekki verið staðfest enn, en það kæmi ekkki á óvart ef það fær ekki græna ljósið miðað við rafvæðingaráform VW.

Er þetta líka sýn á nýjan Ford Transit Connect?

Volkswagen seldi (og framleiddi) upprunalega Caddy í Bandaríkjunum sem Rabbit pallbíllinn, en engin af þeim gerðum sem fylgdu í kjölfarið fengu möguleika á því að aka á amerísku malbiki. Þrátt fyrir að næstu kynslóð sendibifreiðar verði ekki undantekning frá þessari reglu, mun Ford nota sinn grunn til að smíða arftaka Transit Connect og sú gerð hefur góðan möguleika á að snúa aftur til Ameríku.

„Fyrir báða aðila hyggst Ford framleiða og smíða stærri sendibíla fyrir evrópska viðskiptavini og Volkswagen hyggst þróa og reisa sendibíl fyrir borgir“, útskýrði fyrirtækið snemma árs 2019. Það vísaði ekki til Caddy með nafni, en það er borgarvænasti meðlimurinn á þessu sviðsi.

Frumsýndur í febrúar

Það hefur komið fram í fréttum á vefnum á síðustu dögum að Volkswagen mun gefa út frekari upplýsingar um næstu kynslóð Caddy á næstu vikum. Hann verður frumsýndur í febrúar, um svipað leyti og allt önnur gerð Caddy, og það er ein af 34 nýjum gerðum og afbrigðum sem þýski bílaframleiðandinn hyggst koma með á markað á árinu 2020.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is