Söludeild Honda eignast nýtt heimili að Fosshálsi 1

Þjónustudeildin verður hjá Öskju að Krókhálsi 11

Opnunarhátíð Honda á laugardaginn 23. nóvember í nýju söludeildinni að Fosshálsi

image

Það eru mjög áhugaverðir tímar fram undan hjá Honda-umboðinu á nýjum stað. Þeir munu fá fyrstu Honda e rafbílanna á næsta ári og hefst forsala þeirra í janúar nk.

Bílaumboðið Askja tekur formlega við Honda umboðinu á Íslandi þann 8. nóvember nk. Askja tekur við Honda umboðinu af Bernhard sem er í eigu fjölskyldu stofnandans, Gunnars Bernhards. Fyrir er Askja með umboð fyrir Mercedes-Benz og Kia og nú bætist Honda við sem þriðja vörumerkið hjá fyrirtækinu.

Sex nýir umhverfisvænir bílar væntanlegir

Honda hefur markað sér afgerandi stefnu í rafvæðingu og á næstu 36 mánuðum mun Honda kynna sex nýja umhverfisvæna bíla á markað í Evrópu. Þar af verða tveir rafbílar og fjórir Hybrid bílar. Nýr Honda e rafbíll og Honda Jazz í Hybrid útfærslu eru fyrstu bílarnir af þessum sex nýju, umhverfisvænu bílum úr smiðju Honda og koma þeir báðir á næsta ári.

Fyrstu Honda-e rafbílarnir koma á næsta ári

,,Við hjá Öskju erum full tilhlökkunar á þessum spennandi tímamótum og bjóðum viðskiptavini Honda velkomna til okkar. Honda er sterkt og gott merki sem hefur verið vinsælt og vel sinnt á Íslandi. Sterk sýn Honda á rafbílavæðingu sannfærði okkur um að þetta merki hentaði Öskju vel. Við munum fá fyrstu Honda e rafbílanna á næsta ári og hefst forsala þeirra í janúar nk. Það eru því mjög áhugaverðir tímar framundan og ég er sannfærður um Honda merkið á eftir að styrkja sig enn frekar í sessi hér á landi á komandi misserum,” segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju.

,,Í Evrópu leggur Honda áherslu á hönnun, útlit og gæði bíla, en ekki magn” segir Jón Trausti og bætir við að Askja muni bjóða upp á 5 ára ábyrgð á Honda bílum og allt að 5 ára þjónustusamninga með nýjum bílum þar sem eigandi greiðir mánaðarlegt gjald og þá er öll þjónusta innifalin.

„Fyrir hönd Bernhard fjölskyldunnar viljum við stjórnendur Bernhard ehf, Geir, Gylfi og Gunnar Gunnarssynir, þakka hinum fjölmörgu tryggu viðskiptavinum Honda hér á Íslandi samfylgdina undanfarin 57 ár og við óskum Öskju, nýjum umboðsaðila Honda á Íslandi velfarnaðar í framtíðinni“, segir Gylfi Gunnarsson, framkvæmdastjóri Bernhard.

Opnunarhátíð á laugardaginn

Á laugardaginn 23. nóvember verður formlega haldið upp á komu Honda í Öskju og þess vegna verður opnunarhátíð Honda í nýju söludeildinni að Fosshálsi 1. Frábær tilboð í tilefni dagsins og með hverjum seldum bíl fylgja vetrardekk og hágæða lakkvörn. Allir nýir Honda-bílar sem keyptir eru hjá Öskju eru nú með 5 ára ábyrgð.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is