Askja frumsýnir EQS alrafmagnaðan sportjeppa
Fyrsti alrafmagnaði lúxusjeppinn í fullri stærð frá Mercedes-EQS.
Bílaumboðið Askja frumsýndi á fimmtudagskvöldið 12. janúar nýjan og glæsilegan rafmagnaðan EQS sportjeppa (SUV) frá Mercedes-EQS fyrir boðsgestum í aðalstöðvum fyrirtækisins að Krókhálsi 11.
Meðan gestir biðu þess að sjá bílana var boðið upp á margvíslegar veitingar, og strengjasveit lék undir á meðan þess var beðið að gestir gætu virt bílana fyrir sér.
Þau Sigríður Rakel Ólafsdóttir markaðsstjóri og Jón Trausti Ólafsson forstjóri Öskju buðu gesti velkomna og fóru í stuttu máli yfir alla helstu kosti þessa nýja bíls áður en yfirbreiðslunum var svift af og gestir gátu virta bílana fyrir sér.
Og síðan kom að því að bílarnir komu í ljós.
Stóri skjárinn sem nær yfir alla breidd bílsins vakti mikla athygli
616 kom drægni á rafmagni
Við munum að sjálfsögu fjalla nánar um þennan nýja bíl þegar tækifæri gefst til að skoða hann nánar, en hér á eftir eru helstu kostir hans tíundaðir af hálfu Öskju:
EQS SUV setur ný viðmið fyrir rafmagnaðri framtíð í flokki lúxusjeppa með einstakri hönnun og glæsilegu innra rými.
Líkt og EQS fólksbíllinn hefur hann sama langa hjólhafið, góða veghæð og loftpúðafjöðrum sem skilar sér í framúrskarandi akstursgetu.
Til viðbótar við sjö sæti í nýjum EQS SUV er afturás með stýringu staðalbúnaður sem býður upp á ótrúlega lipurð í akstri.
Stafræn lýsing í hátæknivæddri framljósatækni bílsins varpar merkingum og viðvörunartáknum á veginn.
Allt að 616 km drægni og 1800 kg dráttargeta.
Aðrar umfjallanir
Dómnefnd alþjóðlegu verðlaunahátíðarinnar Festival Automobile International (FAI) valdi í lok síðasta árs sigurvegara ársins í fjórtán mismunandi verðlaunaflokkum
Lundúnastrætisvagnarnir frægu þurfa án efa að standast heilmiklar prófanir til að vera réttlætanlegir á götum stórborgarinnar. Þannig var það líka árið 1957 en hátturinn sem hafður var á við prófanir í þá daga var sennilega ögn frábrugðinn prófunum nútímans.
Gamla góða Lada vörumerkið sem í dag er rússneskt vörumerki Renault, mun setja á markað nýjar útgáfur af gamla góða Niva jeppanum (sem við kölluðum Lada Sport)...
Hver kannast ekki við að hafa sagt að eitthvað hafi komið “beint úr kassanum” eða sé „eins og nýtt úr kassanum” þegar um nýjan hlut er að...