Nýr og alrafmagnaður lúxusjeppi frá Mercedes-EQ frumsýndur á laugardag
Bílaumboðið Askja frumsýnir nýjan og glæsilegan EQS SUV frá Mercedes-EQ á laugardaginn næstkomandi klukkan 12-16 í sýningarsal Mercedes-Benz á Krókhálsi 11.
EQS SUV er rafmagnaður lúxusjeppi með einstaka afkastagetu og drægi hans er allt að 616 kílómetrar.
EQS SUV setur ný viðmið fyrir rafmagnaðri framtíð í flokki lúxusjeppa með einstakri hönnun og glæsilegu innra rými.
Líkt og EQS fólksbíllinn hefur hann sama langa hjólhafið, góða veghæð og loftpúðafjöðrum sem skilar sér í framúrskarandi akstursgetu.
Hraðhleðslugeta bílsins er 200kW sem þýðir að hægt verður að ná 300 km drægni á aðeins 15 mínútum og hlaða bílinn 10-80% á u.þ.b. 30 mínútum.
Frumsýningin stendur frá kl. 12–16 í sýningarsal Mercedes-Benz á Krókhálsi 11 og eru allir velkomnir.
(fréttatilkynning frá Öskju)
Aðrar umfjallanir
Rolls-Royce hefur tilkynnt að rafbíllinn Rolls-Royce Spectre hafi lokið einum fjórða af alls 2,5 milljón kílómetra prófunaráætlun sinni, þar sem bíllinn lauk...
Honda CR-V endurskoðaður með nýjum innréttingum og aukinni tækni - en blendingsdrifrásin er óbreytt...
Þau gerast vart furðulegri farartækin en þessi sem hér eru til umfjöllunar. Það sem gerir þau sérstaklega áhugaverð er sú staðreynd að vel þekktir bílaframleiðendur eru að baki þessum ósköpum. Hugmyndabílar eður ei, þá er þetta aldeilis sérstakt samansafn!
Brimborg frumsýnir laugardaginn 23. janúar að Bíldshöfða 8 í Reykjavík, í sýningarsal Peugeot á Íslandi, frá kl. 12-16, glænýjan, sparneytinn, rúmgóðan...