Gleðilegt nýtt ár!
Við hjá Bílabloggi óskum lesendum okkar gleðilegs árs og takk fyrir allar heimsóknirnar á árinu sem var að kveðja.
Bílablogg er ekki gamall vefur en hefur náð að vaxa og dafna vel, sérstaklega vegna áhuga ykkar lesendur góðir á því efni sem við höfum haft fram að færa.
Á þeim stutta tíma sem við höfum starfað höfum við fært ykkur 3281 frétt í 11 fréttaflokkum og reynsluekið 152 mismunandi bílum.
152 þúsund gestir og tæp hálf milljón smella
Á árinu sem var að kveðja fengum við alls um 152.000 gesti á vefinn og „smellir“ á vefinn voru tæp hálf milljón á árinu – nokkuð sem við getum verið ánægð með – og örugglega auglýsendur á vefnum líka.
Nýtt vefumhverfi
Á næstu dögum mun vefurinn síðan birtast í nýju „vefumhverfi“ sem mun gera hann enn læsilegri en áður, betra verður að skoða efnisflokka og fylgjast með fréttum.
Aðrar umfjallanir
Þegar seinni heimsstyrjöldinni lauk hélt Willys-Overland fast í kjörorð framleiðslunnar á stríðsárunum, „sólin sest aldrei á jeppa...
Cadillac Eldorado er lúxusbíll sem GM framleiddi á árunum 1952 til 2002. Alls hafa tólf kynslóðir bílsins litið dagsins ljós...
Ekki myndi maður fyrir sitt litla líf hætta sér í umfjöllun um hvort kynið sé betra í því að stjórna ökutæki: karlar eða konur. Það er ekki umræða mér að skapi enda tek ég ekki þátt í henni. Eftir sem áður má auðvitað skemmta sér við að fylgjast með öðrum ræða þessi mál.
Porsche afhjúpaði Mission R hugmyndabílinn á bílasýningunni í München 2021 - hreinn rafknúinn kappakstursbíll sem er hannaður...