1958 Cadillac Eldorado Biarritz
Cadillac Eldorado er lúxusbíll sem GM framleiddi á árunum 1952 til 2002. Alls hafa tólf kynslóðir bílsins litið dagsins ljós.
Bíllinn sem um ræðir í dag er af gerðinni Cadillac Eldorado Biarritz sem var samheiti á blæjugerðunum á sjötta áratugnum.
Eldorado var ein toppgerða Cadillac línunnar. Upprunalega Eldorado blæjan árgerð 1953 og Eldorado Brougham gerðirnar áttu margt sameiginlegt og voru dýrustu Cadillac gerðirnar sem fengust á þessum árum.
Eldorado var dýrasta gerðin af Cadillac fyrir utan 75 gerðirnar frá fjórða áratugnum og alveg til 1966.
Eldorado hélt síðan sérstöðu sinni sem tveggja dyra lúxusbíll frá árinu 1967 enda hefur bíllinn notið mikilla vinsælda í Bandaríkjunum í gegnum árin.
Bíllinn sem kom árið 1958 var með fjórum framljósum, tveimur hvorum megin. Framhluti bílsins var sá sami á öllum gerðum þessa árs. Árið 1958 var einmitt hálfrar aldar afmæli framleiðandans, og hélt GM upp á fimmtíu ára afmælið með útgáfu afmælismódela af öllum gerðum fyrirtækisins.
Það voru Cadillac Eldorado Seville, Buick Limited Riviera, Oldsmobile Starfire 98, Pontiac Bonneville Catalina og hinn splunkunýi Chevrolet Bel-Air Impala.
Dýrari gerðir allra þessara bíla deildu sömu íhlutum.
1958 var árið sem framhluti bílsins fékk smá uppfærslu. Nýir stuðarar, nýtt hudd og framstuðarinn var með „bullet bumpers“ sem voru tvö framstæð krómuð stykki sem líkja mátti við byssukúlur. Stuðarar lágu neðar og grillið fékk flotta bróderingu í krómið.
Bíllinn var allur hinn skrautlegasti eins og sjá má á myndum.
Cadillac framleiddi aðeins 1.320 stykki af Eldorado Biarritz árið 1959 og kemur því á óvart að talsvert er til af þeim bílum í dag. Þessi bíll sem við fjöllum um hér kostar 199.900 dollara sem útleggst á um 26.2 milljónir króna.
Sölulýsing
Afar vandfundinn Cadillac Eldorado Biarritz sem gerður hefur verið upp frá grunni
Aðrar umfjallanir
Stutt stórra högga á milli stendur einhvers staðar. Við sögðum frá því að Daimler / Mercedes Benz væri að selja verksmiðju sína í Frakklandi sem...
Það er föstudagur. Í dag er líka heimsfrumsýningardagur á fullsköpuðum Aygo X. Við hér á Bílabloggi erum á meðal þeirra sem á sömu stundu birta opinberlega myndir og upplýsingar um hann. Sjáðu hann bara!
Í Bandaríkjunum eru menn duglegir að skipuleggja ýmsa viðburði fyrir jeppaáhugamenn...
Á síðum á borð við Amazon og eBay er hægt að kaupa aragrúa bílaaukahluta. Sumir þeirra eiga að létta bílstjórum lífið en geta í raun stytt þeim aldur, ef svo leiðinlega má komast að orði.