Zagato breytti Alfa Romeo Giulia í glæsilegan tveggja dyra Coupe

Alfa Romeo mun fagna 100 ára samstarfi sínu með sérsmíðaverkstæði Zagaoto með þessari einstöku tveggja dyra Giulia

Samstarf er fallegt, sérstaklega þegar það varir í nokkra áratugi, eða í þessu tilfelli, 100 ár, segir bílavefur Jalopnik.

Það sem slíkt þarfnast er sérsmíðaður bíll, eins og Alfa Romeo Giulia, smíðaður til að fagna 100 ára starfi með mönnum eins og vagnasmiðnum Zagato.

Ítalska hönnunarhúsið, sem hefur áður komið að smíði bíla frá fyrirtækjum eins og Aston Martin og BMW, ákvað að það væri kominn tími til að takast á við annan bíl í línu Alfa Romeo.

image

Gerðu bíla græna aftur, segir Jalopnik. Mynd: Zagato.

Hinn einstaki Alfa Romeo Giulia SWB Zagato, var hannaður af hönnuðum frá Zagato ásamt Alejandro Mesonero, yfirmanni hönnunar hjá Alfa Romeo.

Þegar búið var að stytta bílinn, fór Zagato að breyta fjölskyldubílnum í sportbíl.

Það þýddi að setja bílinn í koltrefja yfirbyggingu, með vísun til eldri tíma, sem dró fram áhrif frá fyrra Alfa Romeo samstarfi.

image

Dökkgrænn Alfa Romeo Giulia SWB Zagato. Langar þig í einn? Því miður er hann seldur. Mynd: Zagato

Ef byrjað er að skoða bílinn að aftan, minnir kantaður afturendinn minnir á TZ3 og rennur inn í hið einkennandi tvöfalda loftbóluþak Zagato.

Fleiri bílar ættu að koma í grænum lit.

En það er ekki bara útlitsuppfærsla sem Zagato hefur gefið Giulia.

image

Er þetta besti framendi Alfa Romeo í mörg ár? Mynd: Zagato

„Ef þér líkar það sem þú sérð hér, þá hef ég slæmar fréttir“ segir Jalopnik-vefurinn – „þessi einskiptisbíll hefur þegar verið seldur“.

(vefur Jalopnik)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is