Volvo EX30 borgarbíll kemur á markað á næsta ári sem grunngerð

Á að vera hluti af „Care by Volvo“ áskriftarþjónustu, með „Gen Z“ kaupendur í huga

Við fjölluðum í nóvember um nýjan smábíl sem væri væntanlegur frá Volvo fljótlega.

Á þeim tíma var hald manna að nýi bíllinn fengi nafnið EX3 eða EX40, en núna er ljóst að það verði EX30.

Í lok kynningarinnar fyrir rafhlöðu-rafmagnaðan Volvo EX90 2023 gaf Jim Rowan, forstjóri Volvo undir fótinn með þennan nýja bíl, minni gerð sem frumsýnd var á næsta ári.

Nýja gerðin, sem stóð í myrkrinu við hliðina á á jafndökkum EX90, leit út eins og „Mini Me“ útgáfa af EX90, allt niður í stöðu og afturljós.

Það var mikið fjallað um það á þessum tíma í nóvember um að þetta væri nýi EX30.

image

Volvo EX30 og EX90 saman á kynningunni hjá Volvo á dögunum

Í viðtali við Automotive News Europe staðfesti Rowan grunsemdirnar með því að kalla nýja smábílinn því nafni.

Svipaður nýja Smart #1

Stærðir eru óþekktar, en EX30 er á sama sjálfbæra grunni (SEA) og nýi Smart #1.

Úrval af rafhlöðum í EX30

Rowan sagði að Volvo muni bjóða upp á úrval af rafhlöðum í EX30 „svo að viðskiptavinur geti valið það úrval sem passar best við lífsstíl þeirra og efnahag.

Forstjórinn sagði að þessir Gen Z kaupendur „vilja enn topp öryggisbúnað, frábæran akstur og hágæði“.

Lægra verð fyrir rafhlöðu með örugga drægni mun án efa hvetja kaupendur, sem hjálpar Volvo einnig að ná markmiði sínu um að selja 1,2 milljónir bíla á heimsvísu fyrir árið 2025.

Gerðir ná verðjöfnuði

Það ár er einnig mikilvægt frá sjónarhóli Rowan vegna þess að það er þegar hann telur að bílar með hefðbundnar brunavélar og rafbílar muni ná verðjöfnuði.

„Ég tel enn að við séum mjög á réttri leið með verðjöfnuð, því verð mun lækka ansi hratt þegar framboð byrjar að mæta eftirspurn aftur.

Auk þess erum við farin að sjá mjög áhugaverða hluti þegar það kemur að rafskauta- og bakskautsefnum og rafhlöðuefnafræði eins og notkun LFP (litíumjárnfosfats) í vissum tilfellum. Þetta mun allt lækka kostnaðinn."

(frétt á vef Autoblog)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is