Það er til heill hellingur af fólki í heiminum sem passa þarf sérstaklega upp á. Ekki endilega vegna þess að það sé klaufalegra en annað fólk eða sjái verr. Nei, þetta er fólkið sem á sér í mörgum tilvikum fleiri óvildarmenn en gengur og gerist. Yfirleitt af pólitískum ástæðum.
Engar áhyggjur gott fólk! Fyrr mun ég dásama breska matargerð en taka upp á því að fjalla um pólitík. Það geri ég ekki.
Hins vegar er það nú svo að í kringum allt þetta fólk sem passa þarf vel og vandlega upp á, sérstaklega í kringum þjóðhöfðingja, eru oftar en ekki voðalega fínir bílar. Þar liggur nú tengingin.
12 menn á hlaupum
Byrjum á leiðtoga Norður-Kóreu, Kim Jong-Un. Það er æði margt óvenjuleg í kringum hann því þannig vill hann jú hafa það, skilst manni. Þegar hann fór í „visitasíu“ til Suður-Kóreu í september 2018 vakti það athygli margra að hópur manna á hlaupum gætti bíls leiðtogans. Eða öllu heldur leiðtogans sjálfs.
Upp brekkur og niður brekkur. Alltaf hlaupa þeir! Skjáskot/YouTube
Tylft manna var á harðahlaupum við bíl leiðtogans. Bíllinn er brynvarin limúsína af gerðinni Mercedes-Maybach S600 Pullman Guard sem er sko ekkert slor: Twin-Turbo V12 og hestöflin vel yfir 500. Bætum svo körlunum 12 við og þá eru þetta ábyggilega þúsund hestöfl. En auðvitað draga mennirnir ekki bílinn. Hlutverk þeirra mun vera að verja flestar hliðar bílsins. Þó ekki framhliðina. Það væri vesen.
Hér er dálítið sýnishorn (eða sýnishlaup):
Í „strætó“ og leyniskyttur hér og þar (aðallega þar)
Forseti Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, er voða vinsæll. Það er að segja vinsælt skotmark, ef marka má allan viðbúnaðinn þegar maðurinn fer eitthvert. Fjöldi bíla ekur saman í hóp og leyniskyttur eru, auðvitað í leyni, þar sem þær sjá vel yfir svæðið.
Athygli vekur að stundum vill Erdogan nú bara vera í strætisvagni eða rútu sem sannarlega er umkringd fjölda bíla og mótorhjóla. Hér á myndinni (skjáskoti af YouTube) er MAN-rúta forsetans og hún er að sjálfsögðu með skotheldum rúðum og svoleiðis.
Þegar forsetinn krefst þess að fara á rútunni þurfa einhverjir línudansarar að vera uppi á þaki rútunnar; tilbúnir að plaffa óvini um leið og þeir þurfa að passa sig í blessuðum beygjunum.
Hér er reyndar ekið mjög hægt þannig að karlarnir á þakinu ultu ekki neitt:
Annars virðist Erdogan vera nokkuð spenntur fyrir langferðabílum; fyrir ári síðan varð hann fyrsti forseti heims til að fara í bíltúr í sjálfkeyrandi rafstrætisvagni og er myndin fyrir neðan tekin á þeim merka degi.
Mennirnir sem teygðu sig lengst út um glugga
Þegar Shinzo Abe var forsætisráðherra Japans fór nokkuð fyrir honum og fylgdarliði hans. Mikil bílastrolla var þá fyrir framan og aftan bíl ráðherrans og úr varð oftar en ekki dálagleg fylking brynvarinna eðalbíla.
Það var eitt nokkuð sérstakt við allt umstangið en það var þegar bíll ráðherrans þurfti að komast framhjá umferðarteppu: Þá fóru lífverðirnir hálfir út um glugga fylgdarbílanna til að gefa öðrum ökumönnum merki um að hægja á sér og hleypa bíl forsætisráðherrans framhjá.
Fyrir vikið þurfti ekki að stöðva umferðina eða loka götum á meðan.
Hér má sjá fimi gluggameistaranna:
Áður var fjallað um (með aðstoð myndbands) hvernig málum er háttað hjá Bandaríkjaforseta en hlekkur á þá umfjöllun er hér fyrir neðan. Strollan sem fylgir forsetanum í Vesturheimi er að sjálfsögðu sú stærsta og mesta í heimi.
Það var ætlunin að taka fleiri „varðhunda“ fyrir en látum þessa duga í bili. Maður varð auðvitað bara dauðþreyttur að sjá mennina tólf hlaupa svona mikið í kringum Maybach-inn að það hálfa hefði meira að segja verið yfirdrifið nóg!
Tengt efni:
Aðrar umfjallanir
Rafmagn eða ekki, G-Class var óvenjuleg innkoma í Mercedes-Benz línuna og bílaiðnaðinn í heild sinni, með nútímalegri hönnun á upphaflega bílnum frá 1970, smíðaður með yfirbyggingu á grind með heilum öxlum og loforð um meiri torfærugetu - en flestir eigendur myndu þora að prófa.
Performance Wipers færa úðagjafann yfir á þurrkuarmana, sem setur vatnsbunurnar nær framrúðunni...
Stærstu sigurvegararnir voru Toyota, Kia - hver hefur bætt við sig tveimur prósentum eða meira af markaðshlutdeild síðan 2017 - á eftir Hyundai...
Haldi þessi þróun áfram gæti endað með því að Norðmenn breyti nafni höfuðborgarinnar í Tesló í stað Osló. Þannig er að árið 2021 var slegið met, því fleiri bílar hafa ekki selst á einu ári í Noregi síðan 1986. Tesla var mest seldi bíllinn 2021.