Það getur verið erfitt að koma miklu skeggi fyrir þegar maður fer í kappakstursgallann. En einn frægasti andlegi leiðtogi nútímans, Jagadish Vasudev, fékk annað hvort aðstoð æðri máttarvalda til þess eða er bara svona flinkur!
Það hljómar ekki vel í vestrænum eyrum en þetta er hann kallaður: Sadhguru. Nafnið er ekki komið til af því að hann lítur yfirleitt út fyrir að vera leiður heldur er þetta heiðurstitill og merkir „hinn sanni gúrú [lærimeistari]“.
Hann er talinn einn af 50 áhrifamestu Indverjunum (gerir það hann ekki að áhrifavaldi? Það hlýtur að vera) samkvæmt lista India Today og svo mætti lengi telja.
Skreppur seiðkarl? Nei, aldeilis ekki! Þetta er gúru. Sadhguru hinn mikli andlegi leiðtogi. Skjáskot/YouTube
Þegar kappakstursökumaðurinn hvarf
Ökumaðurinn Chris Rado á fjölda meta í kappakstri og var fjallað um hann hér í greininni Maðurinn, bíllinn og spoilerarnir.
Eitthvað eru þeir að skeggræða, karlarnir. Skjáskot/YouTube
Hans hrellda sál og lélegi skrokkur urðu einn-tveir-og-þrír eins og nýslegnir túskildingar. Svo ánægður er hann með gúrúinn sinn að hann leyfði honum að prófa 1.400 hestafla tryllitækið sitt eins og sjá má í myndbandinu.
Skeggið og sólgleraugun koma alveg í veg fyrir að maður geti grerint nokkur svipbrigð í andliti blessaðs Sadhguru en vonandi er hann ekki leiður.
Hér er sportgúrúinn ásamt Chris Rado.
Tengt efni:
Aðrar umfjallanir
Rafmagns hlaðbakur frá bandaríska fyrirtækinu Fisker verður „framúrstefnuleg lítil geimferja“ með marga einstaka eiginleika...
Land Rover er að koma aftur með klassíska Defender í Trophy II búningi – með tilvísun til útgáfu Bob Ives Camel Trophy Defender frá 1989. Þetta gæti hljómað eins og déjà vu, því Land Rover gerði það sama í fyrra með Defender Trophy. Nokkur munur er þó á þessum gerðum.
Það er áberandi útlit og nýtt nafn fyrir stærsta fjölnotabílinn frá Volkswagen, vegna þess að VW T7 Multivan hefur verið afhjúpaður í staðinn fyrir T6 Caravelle...
Það hefur nánast verið hljótt um sprotafyrirtækið Bollinger Motors, sem er í Michigan í Bandaríkjunum, frá því að þeir sýndu par rafknúinna torfærubifreiða...