Í júnímánuði árið 1985 átti að keppa í annað skipti á brautinni í Spa (Circuit de Spa-Francorchamps) í Formúlu 1. Nokkru eftir fyrstu keppnina þar, árið 1983, var farið í að leggja millilag á brautina til að bæta veggripið í rigningu. Það fór öðruvísi en búist var við.
Ófyrirséð leiðindi og tafir
Lá fyrir að verkinu þyrfti að vera lokið 60 dögum fyrir notkun brautarinnar. Skrifræði og mennskir pappakassar töfðu framkvæmdina víst nokkuð, sem og feitur skammtur af skítaveðri veturinn 1984-1985.
Ekið á tyggjói
Þegar heitt er í veðri, götutætandi ofurtryllibílar og breið, slétt dekk „koma saman“ reynir gríðarlega á undirlagið, þ.e. brautina. Strax á föstudeginum eftir æfingar ökumanna var brautin orðin verulega löskuð.
Eftir 25 mínútna akstur á laugardeginum var eins og kviknaði á einhverjum perum hjá keppnisstjórn og allur akstur á brautinni stöðvaður. Jæja, yfirborð brautarinnar var tekið að flettast upp og jafnvel bráðna eins og tyggjó.
Fyrir hönd keppenda tilkynnti Niki Lauda fjölmiðlum að keppninni yrði frestað. Belgíska akstursíþróttasambandið þurfti að greiða stóra sekt og keppnin var loks haldin í september sama ár. Það var hrikaleg keppni en meira um hana síðar.
Hér er örstutt myndband um ólukkans brautarmálið:
Aðrar spes:
Aðrar umfjallanir
Hvað svo sem segja má um Mercedes-liðið í Formúlu 1 þá kann það að kveðja fólkið sitt almennilega – alla vega ef það er gert eins og í kvöld þegar ökumaðurinn Vallteri Bottas sagði formlega skilið við liðið.
Endurnýjunarhemlun breytir hreyfiorku bílsins í rafmagn til að hlaða rafhlöðuna og auka skilvirkni og nýtingu orkunnar...
BERLÍN - Audi mun stækka rafbílalínuna sína með rúmgóðum rafgeymadrifnum stationbíl, eða Avant...
Porsche dustar rykið af 2002 Cayenne Cabriolet sem aldrei fór í framleiðslu – 20 árum eftir að hann var búinn til