Já, svei mér þá! Ég held það bara. Sturlaða kittið fyrir Dacia Duster sem við fjölluðum um sl. haust er enn geggjað, en hvað með þetta? Já, hvað finnst ykkur? Sprengir þetta skalann?
Myndir/Instagram/Innovative Composites og Hugo Silva Design
Litla „krúttið“ Honda e er mjög skemmtilega hannaður rafbíll. Nú er að verða til „wide body kit“ á þann litla og hann verður bara algjörlega sultusvalur og eiginlega svo flottur að hann myndi eflaust urra ef hann væri ekki rafbíll.
Að kittinu standa Innovate Composites (engin vefsíða, bara Instagram) og Hugo Silva Designs sem er jú með vefsíðu og Instagram en þetta virðist eitthvað alveg spes verkefni og á Instagram segir að þetta sé ekki hugsað til fjöldaframleiðslu. Þá er ekki að furða að ekkert verð sé að finna.
Af myndunum að dæma eru kittin ekki alveg tilbúin en mikið svakalega lofar þetta góðu! Að mati undirritaðrar í það minnsta. Minnir mig á einhvern hátt bæði á Renault 5 Turbo og VW Golf Mk2. Kannski myndi „afkvæmi“ þeirra líkjast þessum?
Fleiri „Body Kit“ greinar sem þótt hafa hressandi:
Aðrar umfjallanir
BL við Sævarhöfða kynnir á laugardag, 9. október milli kl. 12 og 16, uppfærðan og enn sportlegri fjórhjóladrifinn BMW X3 sem er einn söluhæsti...
BMW hefur staðfest að i3 framleiðslu sé lokið og iX1 kemur í hans stað. Síðasti i3 rúllaði af færibandi verksmiðjunnar í vikunni.
Á þremur mínútum er gamla rafhlaðan tekin úr og ný fullhlaðin komin í staðinn.
Unnendur Ford Mustang eiga von á góðu því nú styttist í að hægt verði að panta Stealth Edition útlitspakka sem og GT Performance pakka fyrir California Special útgáfu Mustang