Tesla næstum tvöfaldaði sölu og framleiðslu á síðasta ári þrátt fyrir skort á íhlutum í birgðakeðjunni og útlit fyrir svipaða frammistöðu árið 2022 og eftir það.
„Engu að síður gerum við ráð fyrir verulegum vexti árið 2022 umfram 2021, vel yfir 50 prósenta vexti.“
Tesla er að leggja lokahönd á framleiðsluleyfi fyrir nýja samsetningarverksmiðju í Berlín.
Afhendingar Tesla jukust um 87 prósent á síðasta ári í 936.000 á heimsvísu, sagði fyrirtækið. Tesla greinir ekki frá sölu í Bandaríkjunum, en Cox Automotive taldi afhendingar vera um 350.000, byggt á áætlunum. Ef rétt er, myndi Tesla ná hærri sölutölum en BMW sem leiðir á árinu 2021.
Musk: Nýir staðir fyrir verksmiðjur í vinnslu.
„Það ætti ekki lengur að vera vafi á hagkvæmni og arðsemi rafknúinna ökutækja,“ sagði Tesla í afkomuskýrslu sinni og vitnaði í gögn um að fyrirtækið hefði náð hærri framlegð en alþjóðlegir bílaframleiðendur sem reiða sig á brunahreyfla.
Svona mun verksmiðjan í Berlín líta út fullbúin
Fyrir komandi ár sagði Musk að nýjar verksmiðjur bílaframleiðandans í Austin og Berlín muni stefna í magnframleiðslu eftir að byrjað var á löggildingarbílum á síðasta ársfjórðungi. Tesla sagði einnig að það gæti ýtt framleiðslu í verksmiðju sinni í Fremont í Kaliforníu, yfir 600.000 farartæki á ári.
Frá framleiðslulínunni í verksmiðjunni í Berlín
Rafbílaframleiðandinn er enn að leggja lokahönd á framleiðsluleyfi fyrir verksmiðjuna í Berlín. Þegar það er tilbúið mun Tesla byrja að afhenda þýsk framleidd módel í Evrópu.
Stefnir að einni milljón bíla á ári
Nú þegar er fyrirtækið tekið að huga að næstu verksmiðju því stefnan er sett á að vaxa upp í milljónir farartækja árlega.
Þrátt fyrir betri afkomuskýrslu en búist var við, lækkuðu hlutabréf Tesla verulega í síðustu viku vegna áhyggna um framtíðarvörur og skorts í aðfangakeðju.
Toni Sacconaghi, sem er háttsettur sérfræðingur hjá Bernstein-fyrirtækinu sagði í rannsóknarskýrslu að markmið Tesla um 50 prósenta vöxt í bílaframleiðslu myndi skila sér í meira en 3 milljónum bíla árið 2024.
(Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Hann heitir Sleipnir stærsti jöklatrukkur í heimi sem var til sýnis fyrir gesti og gangandi við Hörpuna í dag. Þessi gríðarstóri fólksflutningabíll...
Þegar við erum að skrifa um bíla, einkum rafbíla, þá er oftast nær vitnað í prófunarferlið WLTP þegar verið er að fjalla um þá vegalengd sem bíllinn kemst á rafhlöðunum...
Árið er 1964 og meira er talað um eina gerð bíls en nokkra aðra á Íslandi. Að minnsta kosti ef eitthvað er að marka það sem fram kemur í blöðum þess tíma. Samkvæmt því sem þar segir er bíllinn einnig ódýrastur á markaðnum. Hvaða bíll er þetta?
BRUSSEL – Toyota er að undirbúa nýjan evrópskan ökutækjavettvang fyrir blendingsbíla, tengitvinnbíla og rafbíla; allt eftir markaðsaðstæðum og óskum viðskiptavina.