Árið er 1964 og meira er talað um eina gerð bíls en nokkra aðra á Íslandi. Að minnsta kosti ef eitthvað er að marka það sem fram kemur í blöðum þess tíma. Samkvæmt því sem þar segir er bíllinn einnig ódýrastur á markaðnum. Hvaða bíll er þetta?
„Rúmgóður 4ra manna bill, með sléttu gólfi sem auðveldar alla umgengni og hreinsun. Frágangur að innan er sérlega snyrtilegur.“
Nokkuð almennt bara, ekki satt? En nánari lýsing útilokar svo gott sem allt sem stungið var upp á hér að ofan: Kraftmikill, sparneytinn, sterkbyggður, framhjóladrifinn. Það eina sem vantar er fullyrðing um að bíllinn sé hljóðlátur en sú fullyrðing er ekki þarna, enda er þetta er auglýsing fyrir Trabant og birtist hún í Alþýðublaðinu í maí 1964.
Það geta sko allir gert við Trabant
„TRABANT er auðveldasti og ódýrasti bíllinn sem til er í viðgerðum, svo að hver einasti maður á að geta gert við hann sjálfur og sparað þannig verkstæðiskostnað,“ segir í auglýsingunni.
„Myndin sýnir þann hluta yfirbyggingarinnar sem gerður er úr stáli,“ stendur í auglýsingunni um þessa mynd.
„TRABANT er með húsi sem er í sérflokki að styrkleika og léttleika, tvímælalaust eitt öruggasta bílhús sem hefur flutzt til landsins. Húsið er með sterkari stálbitum en flestir aðrir bílar, en þar sem mest hætta er á ryði, svo sem hurðir að neðan, bretti o. fl. er stálgrindin klædd plasti, sem ryðgar ekki og þolir betur árekstra en annað efni. Þar að auki er það auðveldara í viðgerð og miklu ódýrara.“
Allt svo frjálslegt í „gamla daga“
Svona mátti nú bara halda hinu og þessu fram í auglýsingum án frekari röksemda. Enda var margt einfaldara í þá daga en ekki endilega betra. Þó svo að vissulega séu þeir nú margir til sem halda því fram; að allt hafi einmitt verið mun betra þá en nú.
Tengdar greinar:
Aðrar umfjallanir
Volvo ætlar að skipta yfir í „megacasting“ tækni Tesla til að bæta drægni og hleðsluhraða í næstu kynslóð rafbíla sem smíðaðir verða í stærstu og elstu verksmiðju Volvo.
Þetta hljómar ekki vel eða jafnvel sem grín, ekki satt?
Í dag eru liðin 23 ár frá brunanum í Mont Blanc göngunum. 39 manns létust þegar kviknaði í matvælaflutningabíl en eldurinn breiddist út til um 20 annarra vörubíla og 10 fólksbíla. Öryggisatriði í göngum voru víða endurskoðuð eftir þessi ósköp.
Ofurdriftbíllinn, hinn sérsmíðaði 1.400 hestafla Ford Mustang Mach-E, sem er í eigu Vaughn Gittin Jr., átti að vera hér á landi í kvikmyndatökum síðasta sumar. Hætt var við þau áform eftir Íslandsheimsókn og myndbandið tekið upp í Færeyjum.