Stærsti jöklatrukkur í heimi við Hörpu
Hann heitir Sleipnir stærsti jöklatrukkur í heimi sem var til sýnis fyrir gesti og gangandi við Hörpuna í dag. Þessi gríðarstóri fólksflutningabíll tekur um 50 manns í sæti og boðið er upp á fyrsta klassa aðbúnað.
Hér stendur Björn Pétursson við framhjól trukksins. Björn er um 190 sm. á hæð.
Sleipnir er gríðarstór trukkur.
Eftir um eins og hálfs árs vinnu og yfir 70 milljóna króna fjárfestingu er þessi stærsta jöklarúta og líklega stærsti bíll í heimi tilbúinn í jöklaferðir.
Það er bratt upp í trukkinn.
Í sumar stendur til að rúnta upp á Langjökul með íslendinga innanborðs. Um er að ræða ferð upp í rúmlega 1400 metra hæð og þar er fyrirhugað að bjóða upp á grill, snjóbolta, fótbolta, afslöppunar og útsýnis - eða þess sem hópurinn óskar.
Í boði verða ferðir fyrir allt að 48 manns og hægt að sérsníða ferðir eftir óskum. Sleipnir er þýður og til í flest og fátt sem hindrar þennan stærsta trukk í heimi nema kannski merktir þjóðvegir.
4,15 m á hæð 15 m á lengd
Sleipnir er engin smágræja og óhætt er að segja að þessi trukkur fangi augað þegar maður lítur á hann. Enda er hann búinn sætum með tveggjapunkta belti fyrir 48 farþega í hallanlegum leðursætum sem er einnig hægt að auka bil á milli farþega þannig sætin sem eru við ganginn er hægt að toga útí ganginn ef þörf krefur. í bakinu á sætunum er einnig borð og netkarfa fyrir lauslega muni.
Caterpillar C18 Acert Disel stilt í 850 hestöflum í 2100 snúningum 18,1 L
Sjálfskipting: Allison 4800SP 7 þrepa skipting - nánari upplýsingar hér.
Tröllvaxinn búnaður.
Fyrsta flokks farrými - panorama gluggar og leðurklædd sæti.
Græjur
Það er engin hætta á að ekki sé hægt ná upp stemningu í bílnum því hann skartar vægast sagt kraftmiklum hljómtækjum. Þær eru ekki af verri endanum.
Alpine CDE-195. Nokkrir magnarar sem skila 700 rms w í afli. 12 x 17 cm. Kenwood hátalarar. 2 x Alpine PWE S8 - 8" bassabox undir sætum fyrir miðju. 12" Alpine bassakeila aftast
Bókanir og fyrirspurnir sleipnir@sleipnirtours.is - og 866 0789
Aðrar umfjallanir
Nissan Ariya hugmyndabíllinn er forsýning á hinum væntanlega „Leaf jeppa“ frá Nissan sem búist er við að muni koma á markað...
Það virðist alltaf vera pláss fyrir voðalega ljóta spoilera í heiminum. Því miður. Oftar en ekki eru þeir svo stórir að dagsbirta breytist í svartasta myrkur þegar þeir nálgast. Hitastig lækkar, fuglar hætta að syngja og allt verður undarlegt.
Ford er á fullu að undirbúa úrval aukahlutapakka fyrir tilvonandi kaupendur nýja Broncosins, Ford Bronco Sport. Þeir hafa nú kynnt fimm splunkunýja...
Honda mun setja ZR-V lítinn jeppa á markað í Evrópu á næsta ári þar sem bílaframleiðandinn stækkar rafknúið úrval sitt á svæðinu.