„Fimm átta átta fimm fimm tveir tveir,“ er einhver ótrúlegasta markaðssetning á nokkru fyrirbæri sem ég veit um. Í fyrsta lagi fengu landsmenn „rappið“ á heilann og í öðru lagi er Hreyfill eina leigubílastöðin sem fjölmargir vita símanúmerið hjá. Flosi heitinn Ólafsson var engum líkur.
Ekki veit ég hver fékk þá stórgóðu hugmynd að fá sjálfan Flosa Ólafsson í auglýsingu Hreyfils árið 1995, en sá sem fékk þá hugmynd hefur vonandi fengið klapp á bakið fyrir þessa snilld.
Tilefnið var breyting á símanúmerakerfinu. Svæðisnúmerin tilheyrðu fortíðinni þegar sjö stafa símanúmer voru tekin í notkun í júní 1995 og þá kom þessi magnaða auglýsing!
Aðrar umfjallanir
Mazda fagnar 15 árum hjá Brimborg með veglegum afmælistilboðum til 30. júní. Mazda bílar hafa notið mikilla vinsælda á Íslandi og eru þeir í sérflokki...
Lexus, sem frumsýndi ROV torfærubílahugmynd sína í lok síðasta árs, sýnir hana núna á Tokyo Auto Show í Tókýó.
Hjólbarðar eru partur af rekstrarkostnaði bíleigenda. Framboðið er talsvert og verðið eftir því. Það skiptir reyndar gríðarlegu máli að aka ...
Fréttastofan Bloomberg birti frétt sem gæti fengið suma til að þurfa að slaka á: Ef þú hefur beðið spennt/spenntur eftir fullri rafútgáfu af Porsche 911 sportbílnum gætirðu...