Það er allt í pati bæði í Istanbúl í Tyrklandi og Aþenu í Grikklandi vegna óheyrilegrar ofankomu. 5000 bílar sátu fastir víðsvegar um Istanbúl í vikunni og í sumum tilvikum ekkert hægt að gera annað en að kveðja bílinn og halda áfram fótgangandi.
Skjáskot/YouTube
Kannski ekki sú mynd sem maður er með af Aþenu í kollinum. Skjáskot/YouTube
Fyrirsagnir sem líkja borgunum við helvíti vísa nú til snjókomunnar en ekki hitans sem reyndir og víðförlir menn segja alla jafna einkenna helvíti.
Skjáskot/YouTube
Meðalhiti í Aþenu í janúar er á bilinu 13-16°C að því er Google segir. Meðalhiti í Istanbúl á þessum árstíma er um 6-8°C og því er fólki á svæðinu að vonum brugðið.
Skjáskot/YouTube
Ganga sumir svo langt að segja að þetta séu endalokin; dómsdagur sé runninn upp. Þá væntanlega staðbundinn dómsdagur...
Aðrar umfjallanir
Hún ók eins og herforingi „upp eftir“ Kárahnjúkastíflu á Range Rover Sport fyrir fáeinum mánuðum og reyndi það nokkuð á bílstjóra og bílinn. Hér er tæknilega hlið þessa áhugaverða „bíltúrs“ skoðuð.
Þessa dagana eru margir að huga að því að skipta frá sumardekkjum yfir á vetrardekk. Margir bíleigendur hafa valið að vera all áríð á svonefndum...
Reuters fréttastofan birti frétt um það að meðalaldur bandarískra fólksbíla og minni pallbíla hækkaði í 12,1 ár árið 2020, sem er hærra en nokkru sinni fyrr, þar sem Bandaríkjamenn...
Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.