Bílafloti Bandaríkjamanna eldist
- Meðalaldur ökutækja í Bandaríkjunum nær nýju sögulegu hámarki árið 2020
- Færri mílur eknar – væntanlega vegna Covid-19 - og minni bílasala stuðlaði að þessu
Reuters fréttastofan birti frétt um það að meðalaldur bandarískra fólksbíla og minni pallbíla hækkaði í 12,1 ár árið 2020, sem er hærra en nokkru sinni fyrr, þar sem Bandaríkjamenn óku færri kílómetra og úreldu fleiri ökutæki meðan á COVID-19 faraldrinum stóð, samkvæmt IHS Markit.
Rannsóknarfyrirtækið sagði að hækkun á meðalaldri ökutækja gæti verið skammvinn þar sem sala á nýjum og notuðum bílum heldur áfram að aukast þegar heimsfaraldurinn minnkar.
Eknum mílum sem farnar voru á bílum í Bandaríkjunum fækkaði meira en 13% árið 2020, samkvæmt IHS, en meira en 15 milljón ökutæki voru úreld - um 5,6 prósent af heildarfjölda bíla.
Hækkun úr 11,9 árum árið 2019
Venjulega myndi svo hátt hlutfall í förgun leiða til þess að meðalaldur ökutækja lækkaði, sagði fyrirtækið.
En færri mílur, ásamt minni bílasölu meðan á heimsfaraldrinum stóð, höfðu þveröfug áhrif, meðalaldur hækkaði úr 11,9 árum árið 2019.
Rannsóknaraðilar IHS sögðu einnig að áframhaldandi skortur á hálfleiðurum, sem minnkaði framleiðslu ökutækja, leiddi til minni birgða hjá söluaðilum og uppsprengds viðskiptaverðs, sem aftur myndi valda samhliða hækkun á verði notaðra ökutækja.
(Reuters)
Aðrar umfjallanir
Fullrafmagnaða útgáfan af nýjum 7 seríu fólksbíl frá BMW mun skila meira en 600 hestöflum, sagði Oliver Zipse forstjóri, og býður upp á meira afl en tengitvinnbílar, bensín- og dísilútgáfur.
Það er útlit fyrir að um þrjár milljónir manna séu ekki á þeirri skoðun að Tesla Cybertruck sé ógeðslega ljótt ökutæki. Í það minnsta er því haldið fram að búið sé að panta yfir þrjár milljónir af þessum sérstaka pallbíl sem á að fara í fjöldaframleiðslu árið 2023.
Jagúar E-Type er af mörgum talinn einn fallegast bíll sem smíðaður hefur verið. Það á kannski helst við um fyrstu kynslóðina...