Suss hvað hann er flottur! Eða hvað finnst ykkur? BMW M8 lítur hrikalega vel út að mati þeirrar er hér spilar á lyklaborðið.
BMW M8 Competition kemur sem Cabriolet, Coupé og Gran Coupé. Í þessum bílum er 4.4 l twin-turbo V8 vél sem skilar 625 hestöflum og 750Nm togi, átta þrepa skipting og aldrif.
Allt þetta ætti að geta skotið manni úr 0-100 km/klst á 3.2 sekúndum. Ekkert að því!
Allar gerðirnar eru auðvitað stjarnfræðilega vel búnar tæknilega og mikill elegans í öllu innan bíls og utan. Fjögur hjól, útvarp í steríó og svona.
Fyrstu bílarnir verða afhentir í mars og hann kostar, tjah, látum okkur sjá… Ah, ég ruglaðist af öllum þessum núllum en þetta er víst frá 22 milljónum kr. til 24 milljóna kr. Það er að segja fyrir markaðinn í Bretlandi.
Þangað til maður er búinn að safna getur maður hlýjað sér við þessar myndir. Og svo er myndband eða tvö hér fyrir neðan.
Aðrar umfjallanir
Við könnumst öll við litlu sendibílana sem bruna um þjóðvegi landsins með erlenda ferðamenn. Ferðamenn sem spara sér gistinguna með því að gista í þessum venjulegu sendiferðabílum sem hafa verið búnir svefnaðstöðu. Núna hefur Renault þetta skrefinu lengra og innréttað slíkan bíl sem „fimm stjörnu hótel“ að eigin sögn.
„Sökum sterkra viðbragða neytenda og fjölmiðla tókum við þá ákvörðun að setja þennan geggjaða roadster í framleiðslu...
Oftar en ekki er sú mynd dregin upp í hálfgerðu háði að lögreglumenn í Bandaríkjunum séu stöðugt japlandi á kleinuhringjum. Það er ástæða fyrir þessu en myndin er nú orðin býsna bjöguð. Hér er stuttlega rakið hvernig samband kleinuhringja og lögreglu er til komið.
Íslenskur bílaklúbbur varð heimsfrægur á níunda áratugnum og límmiðar með merki klúbbsins seldust „eins og heitar lummur“ erlendis. Klúbburinn Skynsemin ræður var stofnaður í gríni af manni sem sumir töldu „of fínan“ til að aka um á Trabant.