Það þótti heldur betur magnað árið 1968 þegar bifreið var flutt frá Íslandi til annars lands með þotu!
Fyrirsögn fréttarinnar: „Bifreið til London á tveim tímum – Gullfaxi með nýstárlegan farm“
„Þota Flugfélags Íslands annaðist nú fyrir skömmu nýstárlega flutninga. Nú eru ekki lengur vandræði því samfara að flytja bifreiðir millilanda. Liggi mönnum á slíkum flutningum er vandinn ekki annar en að hafa samband við Flugfélagið og að fáum klukkustundum liðnum er bíllinn kominn í fjarlægt land. Þetta gerðist nýlega. Bíll í eigu brezks ríkisborgara var fluttur héðan til London með Gullfaxa, þotu Flugfélagsins,“ sagði í frétt Vísis.
Þotan, sem var af gerðinni Boeing 727, var keypt ný frá verksmiðjum framleiðandans og var henni ákaft fagnað við komuna til landsins í júní 1967. Eins og glöggt má sjá af framhaldi fréttarinnar var Gullfaxi mikill og merkur gripur.
Gullfaxi á Reykjavíkurflugvelli. Ljósmynd/Tíminn, 27. júní 1967
„Eins og kunnugt er af fréttum er þotan útbúin stórum vörudyrum, og eins og sjá má á myndinni, sem tekin var, þegar bíllinn var settur um borð hér í Reykiavík, áttu starfsmenn félagsins ekki í neinum vandræðum með að koma bifreiðinni fyrir. [...] Í vetur hefur framhluti þotunnar verið nýttur til vöruflutninga, en um þessar mundir aukast farþegaflutningar á ný og öll 114 sæti flugvélarinnar verða nýtt til farþegaflutninga.“
Auglýsing sem birtist í Tímanum nokkrum dögum eftir komu Gullfaxa til landsins.
Aðrar umfjallanir
COVID-19 heimsfaraldurinn skapaði martröð fyrir skipuleggjendur hefðbundinna bílasýninga þar sem bílafyrirtæki fóru að frumsýna vörur sínar í gegnum streymi ...
FRANKFURT - Daimler gætiaukið samstarf sitt við Renault til að deila meiri tækni á sviði rafbíla...
Skoda mun hætta að vera með minni rafvæddar gerðir í fyrirsjáanlegri framtíð, eftir að einn af yfirmönnum fyrirtækisins staðfesti að Citigo-e iV myndi hætta og fullyrti að ekki séu fyrirhugaðar núverandi áætlanir um viðbótarútgáfur...
Sebastian Vettel, fyrrum heimsmeistari í Formúlu 1 keppir ekki í Rússlandi vegna þróunar mála milli Rússkands og Úkraínu. Fleiri hafa tekið sama pól í hæðina. Ástandið hefur áhrif víða innan Formúlunnar og þá ekki síst á Haas-liðið hið bandaríska sem styrkt er af rússneskum risa.