Sébastien Loeb og Isabelle Galmiche unnu Monte-Carlo rallið og er þetta áttugasti sigur hans í WRC rallinu en fyrsti sigur hennar. Alls hefur nífaldur heimsmeistarinn, Loeb, unnið Monte-Carlo rallið átta sinnum. Það er erfitt að átta sig á öllum þessum áttum.
Glaðbeittir sigurvegarar uppi á þaki (bílsins). Ljósmynd/Twitter@SebastienLoeb
Hálfnafni hans og samlandi, Sébastien Ogier varð í öðru sæti ásamt aðstoðarökumanninum Benjamin Veilas. Í þriðja sæti urðu þeir Craig Breen og Paul Nagle frá Írlandi.
Sébastien Ogier og Benjamin Veilas. Ljósmynd@World/Red Bull Content Pool
Af sigri Isabelle Galmiche er það að segja að hann er sögulegur því kona hefur ekki unnið í WRC frá árinu 1997 þegar Fabrizia Ponz og Piero Liatti unnu Monte-Carlo rallið á Subaru WRC.
Isabelle Galmiche. Ljósmynd/Jaanus Ree/Red Bull Content Pool og forsíðumyndin er líka frá Jaanus Ree/Red Bull
Írarnir Craig Breen og Paul Nagle urðu í þriðja sæti. Ljósmynd/Jaanus Ree/Red Bull Content Pool
Fleira er það sem fer úr þessu ralli yfir í sögubækurnar því þetta er í fyrsta sinn sem keppt er á tvinnbílum í WRC. Ford Puma Hybrid var farkostur þeirra Loebs og Breens en Ogier var á Toyota Yaris GR.
Ljósmynd/Jaanus Ree/Red Bull Content Pool
Nokkrar myndir fylgja hér en bætast fleiri við þegar ljósmyndarar fara að skila af sér listaverkum dagsins.
Sébastien Ogier og Benjamin Veillas (TOYOTA GAZOO RACING) Ljósmynd/Jaanus Ree/Red Bull Content Pool
Aðstæður voru margbreytilegar en þessar myndir eru teknar í gær. Ljósmynd/Jaanus Ree/Red Bull Content Pool
Aðrar umfjallanir
Land Rover fagnar mikilvægum afmælisdegi í dag: Range Rover er 50 ára. Til að marka tilefnið hefur framleiðandinn sent frá sér...
Þannig vill til að núna eru tvær magnaðar græjur til sölu hjá Toyota á Akureyri. Báðar eru þær af gerðinni Toyota Yaris. Þetta eru tryllitæki, lesendur góðir!
Skoda mun hefja framleiðslu á nýjum sportjeppa sem aðeins notar rafmagn, Enyaq iV, í verksmiðju sinni í Mlada Bolesav í Tékklandi...
Flóðabíll er bíll sem vatn hefur flætt um eða inn í eða fyllst af vatni. Það þykir skárra ef vatnið er ferskvatn en verra ef það er sjór eða klóak...