Nýtt flaggskip Volvo mun kannski heita Embla
- Embla er nafn fyrstu konunnar, í norrænni goðafræði
Samkvæmt vefsíðu Automotive News Europe mun næsta flaggskip Volvo - crossover-bíllinn sem mun taka við hlutverki XC90 – verða rafknúinn og gæti heiðrað ætterni sænska bílaframleiðandans.
Rafknúið flaggskip, crossover frá Volvo, gæti fengið hönnunareinkenni frá Concept Recharge, en hann er sýndur hér á myndinni.
Þar sem Volvo er að breytast í rafknúið vörumerki mun Volvo víkja frá því að nota tölustafi á ökutækjum í framtíðinni. Håkan Samuelsson, forstjóri Volvo Cars, gaf í skyn seint á síðasta ári að nafn nýja crossoversins myndi „byrja á sérhljóða“.
„Nafnamálið er í skoðun,“ sagði Datz í síðustu viku. „Það er ekkert búið að ganga frá því.“
Meira innra rými
Þessi stóri rafknúni crossover verður smíðaður í samsetningarverksmiðju bílaframleiðandans í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum og kemur í sýningarsali snemma árs 2023.
Hönnunin gerir kleift að lækka vélarhlífina og þaklínuna á crossover-bílnum til að auka loftflæði án þess að skerða útsýni farþega.
Innanrými hugmyndarinnar er með 15 tommu snertiskjá og fljótandi skjá fyrir aftan stýrið sem mun nota nýþróað stýrikerfi Volvo.
Handfrjáls akstur
Nýi krossbíllinn mun kynna „eftirlitslaust“ sjálfstýrt aksturskerfi. Virknin verður upphaflega takmörkuð við þjóðvegi.
(Frétt á Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Samkvæmt fréttum frá Reuters og Bloomberg- stefnir Elon Musk forstjóri Tesla, að því að gera sjálfkeyrandi tækni bílaframleiðandans tilbúin fyrir árslok og vonast til að hún gæti verið í almennri útgáfu í Bandaríkjunum og hugsanlega í Evrópu, háð samþykki eftirlitsaðila.
Það er eitthvað undarlegt við þessa fyrirsögn, er það ekki? Jú, hún í raun þversögn. En samt sönn.
Volvo ætlar að skipta yfir í „megacasting“ tækni Tesla til að bæta drægni og hleðsluhraða í næstu kynslóð rafbíla sem smíðaðir verða í stærstu og elstu verksmiðju Volvo.
Nell Richmond elskaði Thunderbirdinn sem hún festi kaup á árið 1961. Hún keypti bílinn splunkunýjan beint af flutningabílnum frá verksmiðjunni...