Það er eitthvað undarlegt við þessa fyrirsögn, er það ekki? Jú, hún í raun þversögn. En samt sönn.
Bílagaurar hafa nú sett V8 vél í Teslu og er það vissulega stórfurðulegt. Karlarnir sem einhverjir kannast kannski við, eru með þættina Rich Rebuilds á YouTube. Hér er samantekt úr verkefni sem fólst í því að kaupa flóðabíl af gerðinni Tesla Model S.
Flóðabíllinn sem keyptur var á uppboði. Skjáskot/YouTube
Allt innvolsið var auðvitað ónýtt en þeir strípuðu bílinn og notuðu eitt og annað úr klessukeyrðum bíl af sömu gerð.
V8 og V8. Ekki hús og bíll heldur djús og bíll.
Vélin er V8 úr Camaro SS og það er áhugavert að sjá upplitið á fólki í myndbandinu hér fyrir neðan þegar það áttar sig á að þetta er enginn rafbíll! Til dæmis á bensínstöðinni.
Þeir sem vilja sjá frá byrjun geta „spólað“ til baka. Þetta eru reyndar mjög skemmtilegir gaurar og fyndnir þannig að það er alveg gaman að horfa á alla delluna.
Aðrar umfjallanir
Þarna er hann! Litli hlunkurinn í öllu sínu veldi – sem hefur látið bíða svona óskaplega lengi eftir sér (og mun láta bíða enn lengur eftir sér). Jú, ég á við Tesla Cybertruck! Hann var í prófunum á Tesla-brautinni í Fremont í fyrradag.
Þessi framúrstefnulegi snjallsímaskjár gerir ökumanni kleift að hafa augun á veginum meðan ekið er á áfangastað...
Rafhlaðan er mikilvægasti - og dýrasti - hluti ökutækisins. Sem betur fer ætti hún að endast sinn tíma.
Jon Winding-Sørensen skrifa á vefnum sínum ww.bilnorge.no að það virðist sem herinn í Suður-Kóreu sé í miðju ferli að staðla verkfærin...