Hann var ákveðinn, ungi maðurinn sem skrapp í Hljómskálagarðinn á bílnum sínum í byrjun júlí árið 1957. Það fór ekki framhjá þeim sem mættu honum að hann var með umferðarreglurnar á hreinu.
Nóg um það!
Árið er 1957 og það er miðvikudagur 5. júlí. Fólk drífur að úr öllum áttum – allir eru á leið í Hljómskálagarðinn í miðbæ Reykjavíkur. Eftirfarandi texti fylgdi myndinni sem birtist í Morgunblaðinu þann 6. júlí 1957:
„Þangað komu ungir og gamlir, konur með smábörn sín í vögnum og kerrum, fullorðnir menn komu þangað til þess að hressa sig eftir erfiði dagsins, því á sólbjörtum dögum er óvíða skemmtilegra í Reykjavík, en suður við Tjörn og í Hljómskálagarðinum.“
Þar var gott að „spana“
Um strákinn á myndinni, sem frábært væri ef einhver lesandi kannaðist við, sagði:
„Þessi ungi ökuþór er á leiðinni þangað líka í litla bílnum sínum og er hvergi smeykur, enda öruggur á umferðarmerkjum og krefst þess að þeir á stærri bílunum taki fullt tillit til sín, og „svíni" ekki á sér í umferðinni, eins og bílstjórarnir kalla það. Hann sagði að það væri svo gott að „spana" eftir stígunum í Hljómskálagarðinum og svo eru þar engir bílar, bara stundum barnavagnar.“
Fleiri voru orðin ekki en skemmtileg er hún og sumarleg myndin af ökumanninum unga og ummæli hans sniðug!
Aðrar umfjallanir
Það var eftirsóknarvert að vera sorpbifreiðarstjóri hér áður fyrr. Það var nefnilega vel launað starf að „vera í öskunni“ hvort sem þar var um að ræða starf bílstjóra eða annað. Árið 1978 varð Sigríður Ólafsdóttir fyrst kvenna til að aka „öskubílnum“ hjá borginni.
Nýi Defender-jeppinn frá Land Rover var frumsýndur með viðhöfn hér á landi um helgina, en nú berast fréttir um að minna framboð verði á...
Hvað er betra eftir erfiðan vinnudag en góð hávaðakeppni? Manni dettur eitt og annað betra í hug en hvað um það. Hér eigast við tveir náungar, hvor á sínum VW Golf 6 GTI og flugeldasýningin hefst. Með tilheyrandi hávaða.
Nýtt lógó Kia hefur fengið þúsundir manna til að leita á netinu að 'KN Car'...