Enn frestar Tesla framleiðslu á Cybertruck
Tesla er að breyta eiginleikum framúrstefnulega rafmagns-pallbílsins eftir því sem samkeppnin eykst frá Ford og Rivian
SAN FRANCISCO – Samkvæmt frétt frá Reuters stefnir Tesla að því að hefja framleiðslu á Cybertruck sínum sem lengi hefur verið beðið eftir, í lok fyrsta ársfjórðungs 2023, og seinka þannig áætlun sinni um að hefja framleiðslu seint á þessu ári. Þetta hafði Reuters, á fimmtudag, eftir aðila sem sagður er þekkja málið.
Cybertruck frá Tesla, sýndur í Meatpacking District á Manhattan í New York borg í Bandaríkjunum, 8. maí 2021. Mynd REUTERS.
Forstjóri Tesla, Elon Musk, sem afhjúpaði framúrstefnulega farartækið árið 2019, hafði þegar seinkað framleiðslu þess frá seint 2021 til seint á árinu 2022.
Musk hefur sagt að hann muni leggja fram uppfært plan varðandi framleiðslu í Tesla 26. janúar.
„Ó maður, þetta ár hefur verið svo mikil martröð aðfangakeðjunnar og það er ekki búið!,“ tísti hann seint í nóvember þegar hann var spurður um Cybertruck.
Tesla ætlar að framleiða Cybertruck í verksmiðju sinni í Texas, en gert er ráð fyrir að framleiðsla á Model Y bílum hefjist snemma á þessu ári.
Tesla smíðar rafbíla og jeppa en hefur misst af pallbílahlutanum, sem er arðbær og gríðarlega vinsæll í Ameríku.
Ford Motor og Rivian Automotive eru á undan Tesla í því að setja á markað rafmagns-pallbíla.
(Reuters og Automotive New Europe)
Aðrar umfjallanir
Toyota voru fljótir að koma með blendingsbíla (hybrid), en japanska fyrirtækið hefur farið sér tiltölulega hægt við að kynna gerðir sem aðeins nota...
Margir sem eru komnir á miðjan aldur vita eflaust hver George S. Patton var. En fyrir hina þá var Patton hershöfðingi í her...
MODENA, Ítalía – Maserati MC20 Cielo, roadster útgáfan af MC20 coupe, lítur út fyrir að hjálpa eina lúxusmerk...
Fyrir fáeinum dögum birtist hér grein um bíla í íslenskum lagatextum og var sú grein vissulega skrifuð til gamans. Við vinnslu þeirrar greinar ákvað...