Alrafmagnaður Peugeot e-308 kemur 2023
- Nýi rafdrifni Peugeot e-308 staðfestur með 400 km drægni
- Stationgerð mun fylgja í kjölfarið
Peugeot hefur staðfest að framleiðandinn muni setja á markað hreina rafknúna útgáfu af nýjum 308 hlaðbak á næsta ári, sem mun keppa við bíla eins og Volkswagen ID.3 og Cupra Born.
Nýi e-308 verður, ásamt væntanlegum Vauxhall Astra-e, fyrsti full rafknúni fólksbíllinn sem verður fáanlegur á Stellantis EMP2 grunninum og fyrsti bíllinn í Stellantis hópnum sem boðinn er með hreinni brennsluvél, tengitvinnbúnaði eða með hreinni raforku, þegar hann kemur í júní 2023.
e-208 og e-2008 eru báðir með 50kWh rafhlöðupakka og 134 hestafla rafmótor, en e-308 verður knúinn af stærri 54kWh rafhlöðu og öflugri 154 hestafla mótor.
Peugeot segir að kerfið muni bjóða upp á hámarksdrægi sem er „meira en 400 km“ . Samsetning rafhlöðunnar hefur einnig breyst, sem gæti leitt til endurbóta eins og hraðari hleðslutíma - þó að Peugeot eigi enn eftir að staðfesta allar tæknilegar upplýsingar.
Gera má ráð fyrir að kaupendum e-308 verði boðið upp á svipað úrval af útfærslum og Peugeot e-208.
Línan ætti að opna með ódýrustu Active Premium forskrift vörumerkisins, og hækka í þægindabúnu Allure Premium gerðina og svo í sportlegt GT Premium flaggskip.
(frétt á vef Auto Express)
Aðrar umfjallanir
Bílaklúbbur Suðurlands stóð fyrir sýningu um helgina. Margt var um flotta fáka og sjá mátti marga gamla og góða úr öllum áttum. Þarna úði og grúði af öllum...
Við þekkjum flest Raptor útgáfuna af pallbílunum frá Ford – en núna sýnir þýska blaðið Auto bild okkur að Ford færir Transit í nýtt útlit...
Bílasýningin í Guangzhou 2022 stendur yfir í Kína núna og hófst frekar með látum með miklum eldi í einum af sýningarbásum framleiðenda...
Nýjasta Honda Jazz verður hleypt af stokkunum aðeins sem blendingur (hybrid) með rafmagnaða útgáfu sem kæmi síðar. Takeki Tanaka...