Bíllinn sem allir virðast sammála um að vera á móti: Fiat Multipla. Hann hefur sennilega aldrei verið á annarri eins blússandi ferð og í þessu myndbandi. Gaman að þessu! Því skemur sem maður þarf að hafa Multipla fyrir augunum – því betra.
Aðrar umfjallanir
Stórmerkileg grúppa á Facebook, sneisafull (samt pláss fyrir fleiri) af sérfræðingum um rússajeppana á Íslandi og notalegt afdrep á oft hringiðukenndum samfélagsmiðlinum. Mikið rétt, þetta er grúppan Rússajeppar á Íslandi.
Þegar Tyler Hoover byrjaði með bílaumfjöllun á YouTube var hann ánægður með sinn gamla Mercedes-Benz 300SD. Áður en hann vissi af var hann búinn að kaupa sér hina ýmsu bíla og bílskúrinn orðinn að „leiðindasafni“ eins og hjá of mörgum YouTube-bílakörlum.
Í gær var sögufrægur bíll seldur á uppboði. Öllu heldur bíll manns sem frægur var að endemum. Í sögulegu samhengi er bíllinn sá að sama skapi vel þekktur en hér er um að ræða bíl sem var í eigu rúmenska einræðisherrans Nicolae Ceausescu.
Volkswagen sýnir mynd af hugmyndabíl fyrir bílasýninguna í Beijing í Peking sem sýnir Tesla keppinaut á árinu 2023...