Rafbíllinn Subaru Solterra með aldrifi kominn í forsölu hjá BL
Nýr rafknúinn jepplingur með aldrifi, Subaru Solterra, fyrsti 100% rafknúni bíllinn frá Subaru, er væntanlegur til BL í sumar og er fosala á jepplingnum þegar hafin hjá umboðinu, þar sem grunnútgáfan kostar frá 6.990 þúsundum króna.
Subaru Solterra er fimm manna rúmgóður jepplingur á nýjum undirvagni, sem búinn er tveimur 80 kW rafmótorum, einum við hvorn öxul, sem saman skila 218 hestöflum, 335 Nm togi og hröðun úr kyrrstöðu í 100 km/klst á 7,6 sekúndum.
Einstakt farþegarými
Solterra er m.a. búinn aukageymslurými undir húddhlífinni og í farþegarýminu er uppréttur 12,3 tommu miðlægur snertiskjár í framanverðum miðjustokkinum milli famsætanna, þar sem helstu stjórntakka er einnig að finna innan seilingar frá ökumanni.
Þá er Solterra ennfremur í boði með vönduðu hljóðkerfi frá Harman Kardon auk þakglugga svo nokkuð sé nefnt.
Subaru Safety Sense
Solterra fylgir nýr öryggisbúnaðarpakki, Subaru Safety Sense, með heildstæðum öryggisbúnaði sem hentar sérlega vel í akstri í hálku og snjó, en ekki síður utan alfararleiða þar sem fjórhjóladrifið nýtur sín hvað best í brekkum á krefjandi undirlagi. Þá varar Safety Sense kerfið við sé annar bíll að nálgast þegar einhver bíldyranna eru opnaðar til að stíga út til að hámarka örugga útgöngu.
Þá greinir öryggiskerfið einnig bíla og gangandi vegfarendur fyrir aftan bílinn og varar ökumann við þegar sett er í bakkgír.
Einnig veitir öryggiskerfið ökumanni 360 gráðu yfirsýn yfir bílinn sem gerir kleift að sjá nálægt umhverfi og átta sig til fulls á aðstæðum, en allar frekari upplýsingar um ríkulegan búnað Subaru Solterra eru að finna á subaru.is.
Aðrar umfjallanir
VW var að senda frá sér nýja mynd til að kveikja áhugann á hinum nýja Golf R sem mun verða frumsýndur þann 4. nóvember næstkomandi, ef allt...
Bílaflutningaskipið og óheillakrákan með því lukkulega nafni Felicity Ace er nú á hafsbotni ásamt 4000 nýjum bílum. Það er á um 3000 metra dýpi 220 sjómílur frá ströndum Azoreyja eftir tveggja vikna vandræði á hafi úti
Dacia frumsýnir í Munchen nýjan Jogger sjö sæta fjölskyldubíl, sem verður fyrsta blendingsútgáfan frá þeim...