Nýja „rafmagns rúgbrauðið“ frá VW kemur í mars
Forstjóri VW Herbert Diess sendi frá sér á Twitter skissu af útlínum nýrrar hönnunar „rúgbrauðsins“, sem byggir á línum upprunalegu gerðarinnar
Samkvæmt fréttum frá Bloomberg og Reuters ásamt vefsíðu Automotive News Europe ætlar Volkswagen Group að afhjúpa ID Buzz þann 9. mars; rafknúinn bíl sem byggir á gamla „rúgbrauðinu“ frá hippatímanum.
Forstjórinn Herbert Diess tilkynnti dagsetninguna í Twitter-færslu þar sem útlínur nýju hönnunarinnar voru teiknaðar upp, sem líkjast mjög línum upprunalega bílsins.
Færsla Herbert Diess á Twitter
VW hafði sagst áður ætla að selja rafdrifinn arftaka bílins í Evrópu og Bandaríkjunum.
Rafdrifna frumgerðin sást í prófunum í Þýskalandi síðasta sumar.
VW hefur sýnt röð frumgerða fyrir nýja „Microbus“, eins og hann er almennt kallaður hjá öðrum, undanfarinn áratug. En þessir sýningarbílar - Budd.E og Bulli - komust aldrei í framleiðslu, aðdáendum bílsins til gremju, en hér má sjá nýjasta hugmyndabílinn ásamt „frumgerð“ rúgbrauðsins.
Keogh sagði að þriggja sætaraða útgáfa af ID.Buzz muni koma á markað í Bandaríkjunum, þar sem upprunalega rúgbrauðið varð táknmynd friðarsinna, síðla árs 2023 eða snemma árs 2024.
VW mun setja tveggja sætaraða útgáfu á markað í Evrópu.
Fram að þessu höfum við aðeins fengið að sjá hugmyndabílinn ID Buzz, sem er hér á myndinni, en endanlega útgáfan kemur í ljós í mars.
VW hefur hafið metnaðarfulla sókn til að velta Tesla úr sessi sem leiðtoga rafbílasölu á heimsvísu.
Þýski bílaframleiðandinn varði í síðasta mánuði 89 milljörðum evra til rafbíla- og hugbúnaðarþróunar fyrir næstu fimm árin og hefur byggt upp sérstakan grunn bíla sem mun standa undir samtals 27 rafknúnum gerðum í lok þessa árs.
[Bloomberg, Reuters ásamt vefsíðu Automotive News Europe]
Aðrar umfjallanir
Ford er reyndar ekki að framleiða radrfina Bronco bíla – að minnsta kosti ekki enn. Hins vegar er möguleiki á að ná sér í rafdrifið tryllitæki í...
Mjög margir nýir bílar eru komnir með þægindabúnað fyrir ökumanninn sem varpar upplýsingum upp í sjónlínu hans um helstu...
Volkswagen rúgbrauð, Samba er þessi flott bíll kallaður. Bíllinn sem um ræðir er nýlega uppgerður og mjög sjaldgæf útgáfa frá árinu 1962...
Porsche var að frumsýna nýjan 911 Dakar á bílasýningunni í Los Angeles