Mikill spenningur
Það sást til splunkunýs Broncos í gærmorgun. Um er að ræða stærri gerðina og þann fyrsta af þeirri gerð hér á landi. Það er bílakóngurinn Ingimar Baldvinsson hjá IB bílum á Selfossi sem ku eiga gripinn – allavega ennþá – hver sem nú kaupir þennan fagra fák.
Jeppinn kominn til höfuðstöðva IB á Selfossi.
Slegist um lausa bíla
Bíllinn sem Ingimar flytur inn er sérlega vel búinn jeppi. Hann er einn af 7.000 eintökum af 1.st Edition Wildtrak gerð og merktur sem slíkur. Broncoinn er fullur af búnaði og má þar nefna Badlands læsingar að framan og aftan með 4.7 hlutföllum, 35 tommu dekk á 8,5 tommu breiðum felgum. Standard búnaður á 1.st Edition og Wildtrak bílum. Verðið á þessum bíl er um 17.770 þús.
Það skal tekið fram að bílar af þessari gerð eru nær ófáanlegir í Bandaríkjunum eins og staðan er í dag - boðið er yfirverð fyrir bíla af þessari gerð.
Þeir hjá IB bílum hafa staðið í ströngu við að koma bílnum á götuna en við náðum tali af Ingimari Baldvinssyni framkvæmdastjóra sem tjáði okkur að bíllinn væri lofaður en von væri á fleirum. Það væri þó ömögulegt að segja til um hvænær þeir bílar kæmu - vonandi sem fyrst, sagði Ingimar.
Myndir: Ford og IB bílar (myndband á Facebook síður IB).
Féttin hefur verið uppfærð!
Aðrar umfjallanir
Hundrað og fjórtán ára sögu Studebaker bílaframleiðandans lauk árið 1966. Einn elsti bílaframleiðandi í Bandaríkjunum hafði lagt upp laupana...
Oft komu nýjungar hægt og rólega milli árgerða og einu og öðru var breytt svo lítið bæri á. Litlir gallar og ýmis leiðindi voru löguð í nýrri árgerð...
Ford mun hætta evrópskri framleiðslu á þriggja dyra útgáfu af Fiesta smábílnum sínum í sumar, þar sem unnið er að því að hagræða framboði og hreinsa út pantanir. Ford notar þriggja dyra Fiesta sem grunn að sportlegri ST útgáfu sinni, eins og bíllinn lengst til hægri á myndinni hér að ofan.
Hver einasta mínúta hinnar mögnuðu Goodwood Festival of Speed er í beinni útsendingu sem horfa má á hér, frá deginum í dag, 23. júní - 26. júní. Fari það nógu hratt þá er það hér!