Maður hefur oft velt því fyrir sér hvað verði um „gamla“ bíla úr Formúlu 1. Það er nokkuð ljóst að margir fara á söfn annað hvort einkasöfn eða önnur sem opin eru almenningi. En það á þó ekki við um þá alla.
Að keppnistímabili loknu er þó allur gangur á því hvað um bílana verður og ber liðunum engin skylda til að upplýsa neitt sérstaklega um afdrif bílanna; hvort eitthvað er endurnýtt, því skilað o.s.frv.
Hér birtist fyrir nokkru grein um skemmtilegt uppátæki Red Bull-liðsins sem notaði eldri Formúlubíl uppi á fjöllum til að vekja athygli á sportinu fyrir fáeinum árum en greinina má lesa hér.
Ýmsar sögur eru sagðar um bílana og má þar nefna að sumir þeirra endi inni í stofu hjá ökumönnum og fleira í þeim dúr. Í meðfylgjandi myndbandi er komið inn á þetta en ég bið lesendur að taka þessu sem léttu sprelli svona á jólunum. Það er svo margt sagt en ekki allt satt. Hvað sem því líður er allt í lagi að velta hlutunum fyrir sér.
Aðrar umfjallanir
...þá mega þeir eiga það að auglýsingarnar frá Land Rover eru oft skemmtilegar!
Henrik Fisker notaði Mobile World Congress í Barcelona til að kynna bílinn sinn, Ocean, fyrir Evrópu. Verð eru tilbúin og framleiðsla hefst í nóvember....
TOKYO - Shiro Nakamura - hinn áhrifamikli hönnuður Nissan sem kallaður var konungur „crossover“-bílanna - hefði ekki getað valið...
Auðvitað ætti maður aldrei að vanmeta það að undir hrjúfu yfirborði manna, og jafnvel ögn glóðuðu, getur leynst umhyggjusamur bílasafnari. James Hetfield, söngvari Metallica, er gott dæmi um ástríðufullan bílasafnara.