Það má með sanni segja að keppnislið, akstursíþróttafólk og bílaframleiðendur klikka ekki á því að senda jólakveðjurnar. Sumar eru með eindæmum frumlegar, einhverjar nokkuð sígildar og aðrar sprenghlægilegar. En allar auðvitað fallega hugsaðar. Það eru nú jólin!
Það er ekkert leiðinlegt að orna sér við jólakveðjurnar sem flæða eftir brautum Twitter. Þeim er auðvitað ekki beint nákvæmlega til manns sjálfs, prívat og persónulega, en eftir sem áður til þeirra sem hafa svipuð áhugamál og maður sjálfur. Áhugamál: Bílar og allt sem þeim tengist.
Lítum á nokkur dæmi til gamans og auðvitað verð ég að byrja á „vini“ mínum, hinum orðljóta en ljúfa Günther Steiner, liðsstjóra Haas í Formúlu 1 sem á einmitt forsíðumyndina líka.
Aðrar umfjallanir
Það er algengur misskilningur sem tengist rafbílum varðandi ending dekkja - í raun munu dekk rafbíla endast lengi...
Tveir nýir og spennandi bílar verða frumsýndir hjá Bílaumboðinu Öskju nk. laugardag kl 12-16. Um er að ræða nýjan EQB frá Mercedes-EQ og nýja kynslóð Kia Sportage...
Þessi framúrstefnulegi snjallsímaskjár gerir ökumanni kleift að hafa augun á veginum meðan ekið er á áfangastað...
Hann er kannski ekki sá flottasti en snjallari er hann en flestir bílar. Svo snjall er R1 að hann fær að fara út í geim en hann er hannaður til að framkvæma hin ýmsu verk á tunglinu. Hann fer í könnunarleiðangra, gerir við og smíðar, svo eitthvað sé nefnt.