Sniðug lausn fyrir þá sem eiga bíla sem eru ekki með leiðsögukerfi
Þessi framúrstefnulegi snjallsímaskjár gerir ökumanni kleift að hafa augun á veginum meðan ekið er á áfangastað.
Flestir eldri bílar eru ekki með innbyggt leiðsögukerfi og margir nýta sér því snjallsímann til þess að finna réttu leiðina á áfangastaðinn.
Það mun vera mjög auðvelt að setja búnaðinn upp þannig að hann gagnist vel í akstrinum.
Við rákumst á réttu lausnina á þessu á netinu á dögunum og viljum deila henni með ykkur hér. Bandaríska fyrirtækið Hudway, sem er í Kaliforníu, hefur verið að kynna bestu lausnina fyrir okkur sem treystum bara á sjallsímann.
Þú getur fært gamla bílinn þinn inn í framtíðina með HUDWAY Glass, snilldarlausn sem gerir kleift að nota HUD-skjáforrit sem er (head-up display) á farsíma sem er í bílnum þínum til að sjá veginn fram undan á greinilegan hátt. Þessi búnaður mun vera sá fyrsti sinnar tegundar, HUDWAY Glass, kemur með 20% stærri mynd úr símanum þínum, á glerplötu sem er fest neðst í framrúðunni í sjónlínu ökumanns og gerir kleift að sjá akstursleiðina, hraðamælinn þinn eða eitthvert annað „HUD-app“ með kristalskýrri mynd sem kemur í veg fyrir að augun þurfi að leita frá sjónlínunni við aksturinn.
Að nóttu til birtist myndin á skjánum með skýrum hætti.
Þessi búnaður kostar rétt undir 50 dollurum á Bandaríkjamarkaði (um 7.300 ISK). Núna er bara að sjá hvort einhver kemur með þennan búnað í sölu hér á landi.
Aðrar umfjallanir
Rafeindaruglari, slöngvisæti, huliðshjúpur, skotflaugar, bílnúmeravíxlari, þokuljós að aftan, vélbyssur, eldvörpur á bak við aðalljósin… Hvaða græju úr Bond-bílunum myndi maður nú velja sér í bílinn ef slíkt byðist?
Að bjóða vinum sínum upp á skyndibita í Tesla Model S Plaid er í lagi. En bíllinn er 1020 hestöfl og það virkilega gerist eitthvað þegar gefið er í! Þá flýgur matur t.d. út um allt en vonandi þykir eigandanum og sprellikarlinum Alex Choi eins gaman að þrífa og að aka bílnum.
Samkvæmt frétt frá Bloomberg lítur út fyrir að Toyota sé stærsti bílaframleiðandi heims þriðja árið í röð, eftir að hafa selt meira en 1 milljón bíla umfram...
Gamall Ford Sierra? Tjah, já svona upp að einhverju marki en ekki er allt sem sýnist. Það var venjuleg 1.6 lítra vél í honum en ekki lengur. M50B20, segir það eitthvað? En Holset HX40?