- Toyota Compact Cruiser EV forsýnir endurborinn rafknúinn FJ Cruiser
- Hann er minni en forverinn, með tvær almennilegar afturhurðir og verður svo sannarlega „crossover“
Á myndum framleiðandans, Toyota, gefur að líta bíla sem ekki hafa verið frumsýndir. Einn þeirra er sá sem er á myndinni hér að ofan og er hann að öllum líkindum sá sem kemur til með að verða stærsta „stjarnan“ í hópnum: Compact Cruiser EV – eða rafknúin gerð.
Jafnvel úr fjarska er ljóst hvað hér er á ferðinni: Endurfæddur FJ Cruiser, að vísu minni, rafknúinn og nokkuð örugglega crossover. Yfirbragðið á framendanum er ótvírætt, jafnvel þótt hringlaga aðalljósunum hafi verið skipt út fyrir nútímalegri LED einingar. Útlitið gefur til kynna hefðbundinn kassalaga afturenda og fjórar almennilegar hurðir. FJ Cruiser var áður með „hálfhurðum“ að aftan. Bíllinn lítur heldur tæpast út eins og hugmyndabíll. „Ef Toyota smíðar ekki eitthvað sem lítur út 90% í þessa veru, þá verðum við steinhissa,“ segja þeir hjá Autoblog. Mynd: Noriaki Mitsuhashi/N-RAK PHOTO AGENCY
Mynd: Noriaki Mitsuhashi/N-RAK PHOTO AGENCY
Reyndar, miðað við hversu góðar viðtökur Ford Bronco Sport hefur fengið, kemur það ekki á óvart að Toyota myndi leitast við að koma fram með eitthvað svipað, innblásið af sínum eigin torfærubílum, og sýna þannig bæði Land Cruiser og FJ Cruiser virðingu.
Höfum líka í huga að FJ Cruiser er enn gríðarlega vinsæll, mörgum árum eftir að Toyota hætti að framleiða bílinn. Og verðmatið á þeim bílum sem smíðaðir voru á síðari framleiðsluárunum er sannarlega sturlað, einkum ef kílómetratalan á mælinum er lág.
Svo ekki sé minnst á hina sérlega vinsælu Trail Teams Edition-gerð bílsins. Bílar af þeirri gerð seljast á mun hærra verði en því sem greitt var fyrir þá nýja. Á þetta líka við um mikið ekin eintök, þó þau séu aðeins ódýrari. Og þetta var raunin áður en verð á notuðum bílum fór í hnút.
Toyota FJ Cruiser. Mynd: Noriaki Mitsuhashi/N-RAK PHOTO AGENCY
Með öðrum orðum; FJ Cruiser er vinsælli í dag en hann var þegar hann var nýr, sem þýðir að Toyota þarf að koma Compact Cruiser EV á markað eins fljótt og hægt er. Auðvitað verður þetta allt öðruvísi farartæki.
Bæði hlýtur hann að verða rúmbetri en forverinn og í smíðinni ætti að kristallast sú reynsla sem Toyota hefur í að búa til alvöru torfærubíla. Ef svo verður ætti grjót og leðja ekki að hindra för þess bíls.
Svo væri það auðvitað rúsínan í pylsuendanum ef hann yrði 100% rafknúinn. „Þetta er bíll sem maður hefur ástæðu til að vera spenntur fyrir,“ segja þeir hjá Autoblog að lokum.
(frétt á vef Autoblog)
Aðrar umfjallanir
Það var árið 1995 sem Citroën DS var í „aðalhlutverki“ í íslenskri kvikmynd. Aðdáendur Citroën í hinum ýmsu löndum hafa hrósað þeim Friðriki Þór Friðrikssyni og Jim Stark fyrir að heiðra þennan glæsilega bíl.
Veiðiferð sem ákveðin var með skömmum fyrirvara reyndist tveimur Bandaríkjamönnum lærdómsrík. Hafi maður haldið að íslenska kvikmyndin Síðasta veiðiferðin sé einhver vitleysa þá er hér sönn saga sem er alveg ferleg!
Skoda hefur aukið stærð nýja Skoda Fabia og bætt við öryggis- og þægindabúnaði en hann mun ekki bjóða blendingaútgáfu (hybrid)...
Þetta verður nú eitthvað! Kia EV6 GT er sportútgáfa af hinum frábærlega vel heppnaða rafbíl, EV6. GT-bíllinn er 576 hestöfl og hröðunin er nú alveg þokkaleg, eða innan við 3.5 sekúndur úr kyrrstöðu upp í 100 km/klst. Það er nú miklu meira en þokkalegt!